Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
22.12.2007 | 00:19
Gömlu fjölskyldugildin eru liðin undir lok eða kvað?
Ég held að karlinn sé að verða ansi meyr; um daginn komu afavísur og nú er amman honum hugstæð.
Þarf maður nokkuð að skammast sín fyrir mýktina?
Við skulum ekki hafa hátt
handan við þilið sefur
amma okkar sem á nú bágt
eitthvað lækninn tefur.
Við skulum ennþá halda á
brattan upp á hólinn.
Amma ekki vita má,
að ég skemmdi kjólinn.
Amma segja sögur kunni
sannar bæði og ekki.
Af álfunum í holtamunni
er dverga færðu í hlekki.
Amma bregður loki á brá
brátt nú snótin sofnar.
Sýnir stjörnu er blikar á
sambandið brátt rofnar.
Amma vekur tel ég víst
mig af værum lúr.
Vil samt vakna allra síst
af vænum draumadúr.
Amma alltaf var svo góð
og leyfði mér að finna,
hve fallega ég fögur ljóð
fæ til mín og minna.
Amma sofnar svefninum langa,
sefur vært á himnum
dagana langa.
20.12.2007 | 20:39
Afavísur á aðventu.
Úr sér gengna afa
á að hafa
út í bæ að kúra
marga dúra,
ekkert er af þeim að hafa.
Einu sinni þekkti ég afa
er reyndi að hafa
barnabörnin prúð
og keypti snúð
og aldinsafa.
-------------------
Yfirgefinn afi fór
að væla.
Hann vildi vera stór
og varla skæla.
-------------------
Afinn hefði aldrei átt að tala,
bara mala,
um kýr með hala.
Afi þessi vildi bara vel
víst ég tel
og Guði fel.
Afinn var að vona,
varla svona
heiðurskona
Afinn hafði enga vörn
aðeins börn
sem steyttu görn.
Afi veit að lífi er ei lokið
bakið hokið
fullt er kokið.
Úti er ævintýri um afa
aldrei hafa
börn án tafa
þurft særa og kafa
sem þau hafa
haft til trafa.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2007 | 19:43
Sumt vex betur (ver) en annað.
Að lokinn heimsókn og ómstikun Karls Logasonar æða- og skurðlæknis.
Sumt vex meira en annað með aldrinum.
Með aldrinum oft ekkert vex,
nema nöldur og hverskonar pex.
Eitt er þó mein
sem kom fyrir svein
að gúllin er rúmlega sex.
6.12.2007 | 20:50
Gúlpur - gúll.
Gúlpur á ósæð er orðinn hættulegur að sögn sérfróðra ef hann er kominn í 50 mm. Um daginn sást á sneiðmynd af mér að gúlpur/gúll hafði myndast og var orðinn nokkuð þroskaður eða 37 mm. Jón V. Högnason snillingur í læknastétt sendi mig í ómskoðun hjá Eyþóri Björgvinssyni sérfræðingi í mannslíkamanum og hitti ég hann í morgun kl. 11:20.
Þegar ég var á leiðinni heim með viðkomu í Vísi hjá honum Þóri frænda mínum Sigurbjörnssyni kaupmanni í u.þ.b. 56 ár að Laugavegi 1, kom mér í hug að orða rafbréfið til Jóns V. Högnasonar svona:
"Það setti að mér talsverða klígju,
mér tókst þó að komast hjá spýju.
Því talsvert mér brá er á skjánum ég sá
gúlp upp á fimmtíu og níu."
Ég vona að aðgerð verði ákveðin sem fyrst.
Vinir og fjölskylda | Breytt 8.12.2007 kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.12.2007 | 13:34
Að niðurlotum kominn?
Jón V. Högnason snillingur og hjartalæknir reyndi að telja í mig orku og taldi að læknisfræðin gætu eitthvað gert í málinu, því ekki væri mikið upp úr örorkubótum að hafa. Mér fannst hann vægðarlaus að sjá ekki hversu mikið skar ég var:
Hvað ég mæddist í lífsins kófi,
í hvílíku líkamstildurshrófi.
Ég segi það satt,
að saddur gat kvatt,
er féll ég á örorkuprófi.
Ég bið Jón Högna. velvirðingar á ófullkominni umgengni minni við sannleikann.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2007 | 23:27
Haltu mér slepptu mér aðferðin.
Mér finnst skjóta skökku við að nýkjörnir fulltrúar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar (StRv) skuli halda áfram að skipta við lögmannsstofu sem ekki er í samvinnu við StRv. Jóhannes Gunnarsson var búinn að greiða úr eigin vasa tæpar hundrað þúsund krónur að eigin sögn og búinn að fá skýrslu í hendur.
Hann ámálgaði við StRv að það greiddi honum þennan útlagða kostnað en formaður StRv Garðar Hilmarsson tjáði honum á fundi með okkur að það myndi félagið ekki gera. Þessi lögmannsstofa væri ekki sú stofa sem félagið hefði samning við. Auk þess væri lögfræðingur á vegum BSRB.
Samt halda kjörnir fulltrúar StRv að skipta við sömu lögmannsstofu. Ekki er tryggðin við félagið mikil í upphafi kjörtímabils.
Enda er þetta fólk þekkt af því að vilja segja skilið við félagið sem það sóttist eftir að vera fulltrúar fyrir.
Það vekur athygli að Starfsmannafélag SVR leggur ekki lengur nafn sitt við söfnunina hvað sem veldur.
Af heimasíðu fulltrúa:
"1500 kall á mann!
Nú þurfum við að leita til starfsmanna til að safna fyrir lögfræðikostnaði sem Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar mun ekki taka þátt í. Síðan síðustu kjarasamningar voru gerðir hefur hópur innan vagnstjórahópsins talið að ýmislegt sem gert hefur verið í niðurskurði á "launakostnaði" hafi orkað tvímælis. Nafn heimasíðunnar "Gráa svæðið" er komið vegna samningstúlkanna á sumum af þessum málum. Því var úr að, við nokkur, kostuðum aðstoðina úr eigin vasa (peningum vel varið). Í dag er kostnaðurinn kominn eitthvað á annað hundrað þúsund. Það styttist í að við förum yfir niðurstöður í þessu máli. Allavega er þetta góður undirbúningur fyrir næstu samningagerð.
Fyrsti reikningur hljóðaði upp á 88.000 krónur. Ekki er enn ljóst hver lokatalan verður en við höfum óskað eftir meiri vinnu og mati á nokkrum málum. Við munum ekki stjórna söfnuninni sjálf til þess að allt sé uppi bæði um kostnað og útgjöld.
Samningurinn okkar rennur út 31. október 2008. Við leitum nú til starfsmanna um framlög til þess að greiða þennann kostnað. Ef hver og einn greiðir 1500 krónur gæti jafnvel orðið afgangur sem við gætum nýtt til frekari dáða á þessu sviði."
Vinir og fjölskylda | Breytt 28.12.2007 kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2007 | 14:13
Bið SÁÁ að hylja slóð mína.
Óvirkir alkar fá ekki tryggingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2007 | 21:19
Nýkjörnir trúnaðarmenn hjá Strætó berir að ósannindum.
Ég varð hvumsa en spurði svo hvers vegna ætti að reka mig. Jú, það er vegna þess að ég hef verið að blogga um málefni fyrirtækisins og Jóhannesi hafi tekist að fá Reyni til að gefa mér eitt tækifæri gegn því að ég hætti að blogga.
Ég lýsi þau bæði Ingunni og Jóhannes ósannindafólk. Það er ekki stafur fyrir þessum fullyrðingum. Ég hélt að óheiðarleikinn hefði náð hápunkti með Valdimar Jónssyni og vona það, en núna sé ég að þau eru á góðri leið þó að langt sé í að þau nái honum.
Vinir og fjölskylda | Breytt 28.12.2007 kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2007 | 11:18
Þegar maðurinn hennar Ljúfu leysti vind.
Við gáfum okkur á tal við sirkusstjórann og í hrókasamræðum verður gesti okkar Ingólfi rafverktaka Árnasyni í Mosfellsbæ á að leysa vind með töluverðum hávaða. Hann lætur sér ekki bregða og segir: "den var god". Sirkusstjórinn feitlaginn Dani með rjóðar eplakinnar svarar að bragði: " ja men den lugter ad helvede til ".
Mér dettur þetta oft í hug við svipaðar kringumstæður.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.9.2007 | 17:02
Er Svandísi illa við sjúklinga?
Ég hélt svo sannarlega að fólk hefði lært af Þverárselsmálinu á sínum tíma, mál sem ætti að vera í handbókum fyrir borgarfulltrúa ásamt svo mörgu öðru.
Skipulagsráð samþykkti að byggja húsnæði fyrir geðfatlaða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Úr hugskoti Heimis
Bloggvinir
- malacai
- gelgjan
- aronb
- skagstrendingur
- agustolafur
- solisasta
- baldher
- emmgje
- bergruniris
- skinogskurir
- bjarnihardar
- gattin
- tilfinningar
- greindur
- ekg
- einarsmaeli
- evabenz
- eyglohardar
- eythora
- ea
- feministi
- arnaeinars
- g-bergendahl
- gudni-is
- lucas
- gudmunduroli
- zeriaph
- boggi
- gotusmidjan
- doritaxi
- hallurg
- smali
- heidistrand
- heidathord
- heimssyn
- diva73
- helgimar
- himmalingur
- kliddi
- haddih
- hordurj
- ingabesta
- ithrottir
- jakobk
- jonaa
- jbv
- joninaottesen
- jon-o-vilhjalmsson
- jonsnae
- jorunn
- juliusbearsson
- katagunn
- katrinsnaeholm
- kolbrunb
- ksh
- kollaogjosep
- kristinn-karl
- kristjan9
- lady
- presleifur
- liljabolla
- vonin
- mariakr
- methusalem
- morgunbladid
- obv
- olinathorv
- omarbjarki
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- rannveigh
- redlion
- trandill
- puma
- runirokk
- rynir
- fullvalda
- hjolina
- heidarbaer
- holmarinn
- nr123minskodun
- sigurdursig
- siggith
- hvala
- stebbifr
- must
- steinunnolina
- svavaralfred
- unnar96
- valdimarjohannesson
- vefritid
- steinibriem
- thorsteinn
- thoragud
- thordisb
- thorolfursfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 1031726
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar