Kastljós til skammar

Enn á ný varð Sigmar Guðmundsson ríkisfjölmiðlinu til skammar í kvöld.

Viðtal hans við Katrínu Jakobsdóttur fór fram eins og engin yfirlýsing hafi komið fram í fréttum kvöldsins.

Eina afsökunin sem þau Sigmar og Katrín hafa er að þau hafi ekki hlustað á kvöldfréttir RUV frekar en þorri landsmanna.


mbl.is Bjarni: Ekkert skattaskjól hjá mér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími til kominn

Það er kominn tími til að fréttamiðlar birti réttar myndir af bílunum sem verktakarnir nota.

Str´tó og byggðarfélögin sem standa að því fyrirtæki mega skammast sín niður í tær yfir ósómanum sem þeir bjóða fötluðum.


mbl.is Skilinn eftir á röngum stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sögur ganga og spurningar vakna

Mikið er rætt manna á meðal um breytingar á ferðaþjónustu fatlaðra. Ber einna hæst meint hagsmunatengsl við val og uppsetningu tölvukerfis. Annað umtalað er hversvegna sami var við eigendur City Taxi um aksturinn. Þá er hávær umræða um hversvegna ekki var óskað eftir fyrrum starfsfólki á skrifstofunni.

Einn er sá maður sem settur hefur verið til hliðar, en veit manna mest um uppbyggingu Ferðaþjónustunnar, en það er Hörður Gíslason sá vammlausi embættismaður.

Sannleikurinn mun koma í ljós eftir úttekt neyðarstjórnarinnar og víst er að skemmdu eplin eru mörg.


mbl.is „Þú veist svarið, komdu með það“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

City Taxi

Altalað er að lélegasta leigubílastöð landsins og þótt víðar væri leitað  sé verktaki hjá Strætó við flutning fatlaðra.

Getur framkvæmdastjóri Strætós staðfest það?


mbl.is „Við erum gríðarlega ósátt “
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fúsk

Fyrir breytinguna á ferðaþjónustu fatlaðra í lok síðasta árs, var þjónustan með þeim hætti að til mikillar fyrirmyndar var. Stjórnun, skipulag og framkvæmd var unnin af vönduðu fólki sem setti allan sinn metnað í að sinna viðkvæmum viðskiptavinum sem best.

Af óskiljanlegum ástæðum var hætt við þetta fyrirkomulag, starfsmenn með langan og flekklausan feril fengu pokann sinn og í þeirra stað ráðnir reynslulausir og í tilvikum óábyrgir menn.

Það ber að varast að gera málið pólitískt, en greinilega er ekki staðið faglega að verki og rík ástæða er til að bæta úr sem fyrst.

Hvað með að leita í smiðju fyrrum starfsmanna?


mbl.is Stúlkan sem sat ein í bílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harðstjórnin kemur starfseminni í koll

Stjórnunarstíllin sem Reynir Jónsson tók upp hjá Strætó í náinni samvinnu við Einar Kristjánsson hefur ekki leitt annað en ógæfu yfir fyrirtækið. Stafsmenn líða og farþegarnir ekki síður.

Ekki má gleyma öllum þeim öldruðu sem ekki geta notað þjónustuna vegna fjarlægðar frá biðstöðvum  og stopulli ferðatíðni. Síðasta grunnbreyting á leiðakerfinu gerði ekki ráð fyrir eldri borgurum, enda voru þeir ekki nema 4-5% af heildarfjölda viðskiptavina þjónustufyrirtækisins að sögn borgarfulltrúa.


mbl.is Strætó harmar hörmulegt atvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Feb. 2015
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband