Vísnahorn Morgunblaðsins í dag


"Mærðin sækir að Heimi L. 

Fjeldsted um hátíðar og áramót svo 

sem sjá má: 

 

Einn ég er á nýársnótt, 

niðurdreginn, aldinn. 

Að mér sækir ellisótt, 

áður nokkuð baldinn. 

 

Og honum verður hugsað til sjö 

ára afastelpu sinnar: 

 

Yndislega litla ljós, 

líst mér þig að þekkja. 

Aldrei skaltu Erla Rós 

afa gamla hrekkja. "


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Þórðarson/dóritaxi

fallegar vísur

kv,

dóri

Halldór Þórðarson/dóritaxi, 6.1.2009 kl. 17:56

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

já, fallegar vísur. Sérstaklega sú síðari!

María Kristjánsdóttir, 6.1.2009 kl. 18:08

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Tack saa mycket!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.1.2009 kl. 18:21

4 Smámynd: Halldór Þórðarson/dóritaxi

Að mínu mati er sú fyrri betur ort hvað varðar bragfræði   , dýpri kveðskapur í henni og segir meira.

Halldór Þórðarson/dóritaxi, 6.1.2009 kl. 20:30

5 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Flottar vísur Heimir minn, hefðu mátt lýsa meiri gleði. Svo mikil angurværð.

Kolbrún Baldursdóttir, 6.1.2009 kl. 20:47

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það sótti að mér depurð mín ágæta Kolbrún og hana setti ég á blað á þennan hátt.

Dóri þú ert á sama máli og ein sem ekki vill láta nafns síns getið.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.1.2009 kl. 20:52

7 Smámynd: Halldór Þórðarson/dóritaxi

Heimir ! nú fer sól hækkandi á himni og þá léttist okkar lund, læt fljóta einn fyrripart eftir afa minn þú kannski setur botn við hann.

kv, dóri

 Hvað er það sem fljótast fær

frá oss trega hrundið ?

Halldór Þórðarson/dóritaxi, 6.1.2009 kl. 21:00

8 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hvort það er við hæfi að botna á þennan hátt:

Hvað er það sem fljótast fær

frá oss trega hrundið ?

Það að koma ennþá nær

nærbuxnalaust sprundið.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.1.2009 kl. 21:07

9 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ætti að vera....

Það er kemur ennþá nær

nærbuxnalaust sprundið.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.1.2009 kl. 21:08

10 Smámynd: Halldór Þórðarson/dóritaxi

læt hér einn frá "afa"

drekka af pela tárin tær 

tryggð við binda sprundið.

Halldór Þórðarson/dóritaxi, 6.1.2009 kl. 21:15

11 Smámynd: Halldór Þórðarson/dóritaxi

og eða..

reka kýr og rýja ær 

réttar veggjum undir.

Halldór Þórðarson/dóritaxi, 6.1.2009 kl. 21:17

12 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Afi innan gæsalappa. Hvað býr undir Dóri?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.1.2009 kl. 21:44

13 Smámynd: Halldór Þórðarson/dóritaxi

með hækkandi sól koma annir með sínu amstri en um leið léttist okka lund,

ég er á leið til Noregs að vinna, er með tveggjaára samning í hendi þar.. erútuakstur í Stafanger

Halldór Þórðarson/dóritaxi, 6.1.2009 kl. 21:54

14 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Gott hjá þér.

Verður eitthvað eftir þegar húsaleiga og annað er greitt?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.1.2009 kl. 22:08

15 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

góðar áramótavísur...þá eru margir í...og aldrei það kemur til baka.

Gleðilegt nýtt ár!

Eva Benjamínsdóttir, 7.1.2009 kl. 00:51

16 Smámynd: Hilmar Sæberg Ásgeirsson

Heimir minn ,takk fyrir vísurnar þær voru nokkur góðar ,flott hjá afa að setja í ljóð afastelpuna.Heimir minn sendi þér seinna vísukorn ,læt þig vita ,alltaf gaman af vísum sem bloggvinir gera TAKK KÆRLEGA FYRIR MIG ;ÞAÐ MÆTTU FLEYRI SENGA FRÁ SÉR LJÓÐ TAKK TAKKHILMAR SÆBERG (DRENGUR GÓÐUR ).

Hilmar Sæberg Ásgeirsson, 7.1.2009 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband