Aðförin ógeðsleg

Aðförin að Bjarna hefur verið ógeðsleg. Leikir sem lærðir hafa rægt hann og nítt með dylgjum um glæpsamlegt athæfi sem ekki á sér stoð.

Prestar og prelátar hafa í ræðu og riti sagt hann glæpamann í einhverju vafningsmáli. Engin rök. Engar sannanir. Megi þau öll hafa skömm fyrir.

Einelti sem þetta hefur tæpast sést á landinu síðan alnafni hans var forsætisráðherra. Mörgum er það í fersku minni þegar allaballar héldu drykkjuveislur og dönsuðu á götum úti þegar fregnir bárust af sviplegu andláti hans og fjölskyldu í bruna á Þingvöllum.


Bjarni Benediktsson er heilsteyptur, heiðarlegur og góður drengur sem ekki má vamm sitt vita. Líklega hopar hann og gefst loksins upp fyrir rógstungum illa innrætts fólks. Sama fólk kennir sig gjarnan við mannúð og réttlæti.


mbl.is Tilgangurinn að grafa undan Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: rhansen

SVO INNILEGA SAMMÁLA ..þó eg kjósi ekki XD þá hef eg minar skoðanir á formanni þess flokks ...En það eru nokkrir úlfar i sauðagæru innannborðs þarna og þar bætti  ekki um nyr varaformaður !  Sem engum ætti að hafa yfirsest að vill starfa með Samfylkingunni  meira en öllu öðru og rær að þvi öllum árum en horfir sennilega á það sem vonlitið  spil ,,,,,,,nema kanski koma BB burt ??

rhansen, 12.4.2013 kl. 13:10

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Atlagan er ódrengileg.

Sjálfstæðismenn vilja veg flokksins sem mestan og bestan, þessvegna hafa þeir látið gera skoðanakönnunina sem sínir miklar vinsældar Hönnu Birnu. Þó að ég styðji Bjarna til áframhaldandi setu, þá hef ég ekkert á móti Hönnu Birnu nema síður sé.

Finnst skynsamlegast að BB taki slaginn til enda. Það versta sem getur hent er að flokkurinn fái minna fylgi vegna árása níðinga og mannorðsþjófa og önnur visnstristjórn líti dagsins ljós undir forystu guðföður núverandi stjórnar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.4.2013 kl. 13:43

3 Smámynd: Rafn Guðmundsson

það eru nú sennilega margir sem bíða eftir að þú sýnir fram á að þessi fullyrðing þín sé rétt

"Mörgum er það í fersku minni þegar allaballar héldu drykkjuveislur og dönsuðu á götum úti þegar fregnir bárust af sviplegu andláti hans og fjölskyldu í bruna á Þingvöllum"

Rafn Guðmundsson, 12.4.2013 kl. 15:48

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Rafn, ekki veit ég hvað þú ert gamall, en kannski þekkir þú einhveren þér nákomin sem man þá tíð.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.4.2013 kl. 16:43

5 identicon

Ég vona að hann gefi ekki  tommu eftir og komi svikulu birnunni frá. Búinn að fá nóg af yfirgangi kerlinga í stjórnmálum. Við þurfum  yfirvegaðan karl í brúnna eins og Bjarna en ekki geltandi vélbyssukjaft  eins og hana Hönnu Birnu.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 12.4.2013 kl. 22:00

6 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Sem betur fer hopaði hann ekki!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 13.4.2013 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1031769

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband