Borgarstjóri Reykjavíkur

Ríki og borg og leiðtogarnir

Sífellt fleirum er að verða ljóst að landið er eins og stjórnlaust rekald í haugasjó með Jóhönnu Sigurðardóttur í brúnni og Steingrím Sigfússon í vélarrúminu. En þá væri huggun harmi gegn ef stjórn höfuðborgarinnar væri í styrkum höndum. Því trúa fáir eftir viðtal sjónvarpsins við borgarstjórann um málefni orkuveitunnar, uppsagnir, gjaldskrárhækkanir og útsvarshækkun. Það fór þannig fram í uppskrift þótt ekki nái hún sömu hæðum og myndbirting þess:

„Borgarstjóri: Ja það má búast við því, en það er samt ekkert útséð með það, það er nokkuð sem mig persónulega langar ekki að gera, og mig langar til þess að leita allra leiða, raunveruleikinn er samt sá að tekjur borgarinnar hafa dregist rosalega mikið saman og við þurfum að brúa eða fylla upp í stórt gat og erum að reyna að leita allra leiða til þess að gera það.

Fréttamaður: Í nýrri fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur er gert ráð fyrir fjögurra og hálfs milljarðs króna hagnaði á næsta ári. Fréttastofa spurði hvort uppsagnir og gjaldskrárhækkanir Orkuveitunnar væru nauðsynlegar í þessu ljósi.

Borgarstjóri: Þetta er svona einhverjir talnaleikir sem að, ég kann ekki einu sinni að útskýra þá sko.

Fréttamaður: Fjögurra og hálfs milljarðs króna hagnaður, það hljómar ekki eins og illa statt fyrirtæki, hvort sem þetta eru talnaleikir eða ekki.

Borgarstjóri: Nei ég bara ég skil ekki, skil ekki hvernig hægt er að fá þetta út, fá þetta út, ég man ekki hvað orðin heita einu sinni sem að eru notuð til þess að setja þetta svona upp.

Fréttamaður: En en en...

Borgarstjóri (snýr sér við): Björn, hvað heitir þetta aftur?

Björn Blöndal (aðstoðarmaður borgarstjóra, birtist undan vegg): Þið verðið náttúrlega að skoða skuldirnar, sko, áður en að þið spurjið svona...

Drengur með jólasveinahúfu hleypur í burtu.

Borgarstjóri: Já það er eitthvað svoleiðis, já þetta er eitthvað...

Björn Blöndal: Það eru talsvert stórir gjalddagar á næsta ári.

Borgarstjóri: Já.

Björn Blöndal: Sem þarf að eiga fyrir.“

Óskaplega hljóta þeir borgarbúar að vera stoltir sem kusu Besta flokkinn til að refsa pólitíkusum. Hverjir sitja uppi með refsinguna?

Leiðari Mogga í dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband