450 mannslíf

Á stjórnartíma Sjálfstæðisflokksins lætur nærri að um 450 manns hafi látist í umferðinni. Það er mikill skaði hverri þjóð að missa fólk í blóma lífsins. Á að leiða forsætis- og  dómsmálaráðherra fyrir landsdóm vegna ónógrar löggæslu, gáleysis við akstur eða áfengis- og lyfjaneyslu  sumra ökumannanna?
mbl.is Davíð sagði nefndarmenn vanhæfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jonni

Það er nokkuð hressilegt að líkja hruni efnahagslífsins við bílslys.  Hversu langt er hægt að stinga höfðinu í sandinn?

Jonni, 13.4.2010 kl. 11:14

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þú skilur samlíkinguna kannski seinna, ef þú liggur yfir henni;)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 13.4.2010 kl. 11:30

3 Smámynd: Jonni

Ég skil samlíkinguna, en ég er ekki alveg viss um að þú skiljir ábyrgðarhugtakið í þessu samhengi. 

Jonni, 13.4.2010 kl. 11:45

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég er að reyna að segja það Jonni, að enginn mannlegur máttur getur stöðvað vitleysingja eins og Björgólf Thor, Jón Ásgeir og Hannes Smárason svo fáeinir séu nefndir. Þeir voru með mjög einbeittan brotavilja og keyptu eftirlitsmenn þess opinbera til fylgilags. Þú heldur þó ekki að mútutilraun Hreins Loftssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hafi ekki átt við rök að styðjast? Heldur þú að sú tilraun hafi verið einsdæmi? Hvernig heldur þú að Valgerður Sverrisdóttir hafi auðgast?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 13.4.2010 kl. 12:01

5 Smámynd: Jonni

Það er einmitt kjarni málsins; hvort mannlegur máttur hafi getað "stoppað" ruglið.  Auðvitað er það bara fásinna að halda slíku fram, að það hafi verið ógerningur að stoppa þetta.  Það er hlutverk stjórnvalda að koma í veg fyrir svona glæpastarfsemi, og taki stjórnmálamenn við mútum eru þeir um leið hluti af mafíunni. 

Það er líka það sem þessi skýrsla hefur að sínum aðalpunkti; áfellisdómur yfir ótækri stjórnsýslu.  Hvað eigum við að læra af þessu og hvernig gerum við það?  Ekki með því að kalla þetta bílslys, svo mikið er víst.

Jonni, 13.4.2010 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband