Flugumaður í ráðuneyti dómsmála

Svo virðist sem kommar hafi flugumann eða menn í ráðuneyti dómsmála sem leka gögnum til að koma höggi á ráðherra.
mbl.is Tilbúinn að sýna „réttum aðilum“ minnisblaðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Már hinn marktæki

Már Guðmundsson var og hefur verið óspar á upplýsingar um færni sína og hæfni. Krafðist hann hærri launa fyrir vikið því hann taldi sig vanmetinn til launa. Gekk hann svo langt sem seðlabankastjóri að fara í mál við sjálfan sig seðlabankastjórann til að auka vægi kröfu sinnar til sjálfs sín og fá dómstóla til að dæma sér í vil gegn sjálfum sér. Til að kóróna eigin umsögn um eigið ágæti gekk hann í skrokk á mannorði útgerðarmanna eins best rekna útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækis landsins með álognar sakir og fullyrðingar um glæpsamlegt framferði. Er ekki rétt að Már Guðmundsson fari að draga pokann sinn úr geymslu og troða föggum sínum hjá Seðlabanka Íslands í hann. Hann þarf að vera tilbúinn brottför. 
mbl.is Segir ásakanir Seðlabanka rangar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta reddast

Auðvitað víkur öll fiskvinnsla í stærstu verstöð landsins fyrir stúdentaíbúðum, göngu- og hjólastígum og veitingastöðum.

Borgarfulltrúar í Reykjavík gera sér öðrum fremur ljóst hvar verðmætin verða til og þá eru fiskveiðar og fiskvinnsla bara fyrir.

Nú þegar hafa þeir kvartað hástöfum yfir því að of mikið land fari undir götur og eru farnir að þrengja þær mjög samanber Borgartúnið og Suðurgötuna.

Þá er flugvöllurinn fyrir þeim,  því þar má byggja svo margar stúdentaíbúðir á dýrasta landsvæði landsins.

Hvernig á að kosta allt þetta er bara aukaatriði í hugum þessa fólks.

Þetta reddast. 


mbl.is Íbúðir og fiskur fara ekki saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. febrúar 2014

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 1031846

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband