Færsluflokkur: Menning og listir

Sóleyjarjólasveinafemínistaklíka........

Jólasveinafemínistaklíka
enga vil ég slíka
ef á þeim er píka.

Ekki veit ég nema þessi Hallgerður sem réðist inn í líf mitt í dag sem eitthvað skyld eða tengd Heidi.

Hún kom inn í líf mitt í dag og lét dólgslega eða öllu heldur Sóleyjar femínistalega, ég gerði allt sem í mínu valdi stóð til að bægja henni frá og hér eru þær tíu aðferðir sem reyndust mér best: 

Tíu misgóðar aðferðir við að fá Hallgerði úr huganum.

Hallgerður í humátt
ég held á eftir þér.
Allt það sem ég hef átt
er ást mín á þér.

Hallgerður þér hátt
undir höfði ég hef
gert, en ég geri fátt
og gæfuna tef.

Hallgerður núna geri
gott úr höfnun þinni.
Skömmin mig ofan sneri
af stúlkunni minni.

Hallgerður haltu á
heimsómyndinni
láttu ekki líða hjá
að lok´ana inni.

Hallgerður hætta vil
hug minn að þjaka,
best er þá baka til
beinum að stjaka.

Hallgerður hættur er
hugarkvöl minni.
Ég  gef mér að gæfan þér
gagnist að sinni.

Hallgerður hættu strax
halnum að trúa.
Ávallt er auðnu dags,
alltaf að ljúga.

Hallgerður hvenær vann
halur þinn hug
sýndi hann sama mann
og sama dug?

Hallgerður hættu þá
hug minn að kvelja.
Lifandi lengur má,
lífs ofar telja.

Hættu því Hallgerður
hugann vil hvíla.
Argur og illgerður,
eymd hugarvíla.

Hver er þessi Hallgerður?


mbl.is Heidi lögsótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem allir skyldu varast er að fárast yfir ógefnum gjöfum.

Heilræði.

Það sem allir skyldu varast er að fárast yfir ógefnum gjöfum.

Skammdegisþankar í Þ-dúr.


Náhenda með þráhyggjubrag.


Að hætta á hentugum tíma
hýrunni á,
hún leggur sig í líma
launhirðin þá.

Að hirða af mér hrygginn
heldur nálegt er.
Nálega náboran
nýtir sér.

Að hætta á hentugum tíma
heldur fulltrúinn
hann svíkur mig um skattinn
enn um sinn.

Að spara fólki skattinn
saklaust telja má.
Tekur af mér tollinn
fulltrúinn þá.

Að lokið sé launum
lúra þeir á.
Í desember datt þó inn
dámygla smá.

Litlir karlar  leggjast á
liggjandi mann.
Þeim til frægðar færa má
fantaskapinn þann.

Hátt í hatursmælingum
hyllir undir topp.
Síst vil ég með skrælingjum,
og segi því stopp.

Ekki getur bitur karl þó alveg hætt.

Lokið er að lasta nú
loksins þagna kann.
Fláráður fagnar jú
því fulltrúinn vann.



Besta bókin

Það er langt síðan ég hef hlegið eins dátt og í gær.
Ég var kominn upp í rúm með nýja bók og vænti góðs en svo góðs gat ég ekki ímyndað mér.
Frá fyrsta ljóði til þess síðasta var hrein og ósvikin skemmtun og ekki síður myndirnar sem skreyta bókina, unun á að líta.
Þau systkinin Þórarinn og Sigrún Eldjárn hafa skapað listaverk sem mun ylja og gleðja um ókomin ár.

Bókin er ætluð börnum. Ég vil alltaf vera barn.


mbl.is Sáu ekki fram á að geta haldið jól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ítalski tenórinn syngur Hamraborgina í iðrum jarðar.

Ég held að það sé í fyrsta sinn á minni stuttu ævi að ég fæ gæsahúð af söng þegar Ítalskur tenór syngur íslenskt hetjutenóra sönglag.

Mínar bestu þakkir tenore grandeSmile 


mbl.is Hamraborgin nötraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjötborg klikkar ekki.

Þeir klikka ekki á neinu bræðurnir í Kjötborg fyrir jólin frekar en fyrri daginn. Hverfisskáldin fást þar á góðu verði þ.e.a.s. Árni Þórarinsson, Kristný Gerður og Þórarinn Eldjárn.
Aðspurðir sagði kaupmaðurinn Gunnar Jónasson að hann ætti von á rífandi sölu nú sem endranær þegar bækur landsliðsins væru annarsvegar.
Hitti Jón Jónsson fyrrverandi yfirkaupmann þar í dag og var hann yfirmátahress að vanda, svo erfitt var að halda heim á leið eftir velheppnaða verslunarferð. Fólk var að tala um að veðrið væri slæmt austan lækjar og var það helst til tíðinda í Kjötborg í dag.

Orðsnilld herra Sigurbjörns bera okkur til hæstu hæða

Mér þykir val verðlaunahafa á degi íslenskrar tungu afskaplega vel heppnað að þessu sinni. Herra Sigurbjörn hefur haldið vönduðu og vel grunduðu máli að þjóðinni í áratugi svo vel að hann á fáa sér líka. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hlýða á hugvekjur hans á kyrrðardögum í Skálholti í dymbilviku um árabil. Þar hefur hann borið okkur á vængjum orðsins um víðan heim, svo ógleymanlegt er.
Ég minnist þess að afi minn Eggert Lárusson Fjeldsted taldi hann mestan andans mann á landinu þá og það var fyrir 1960; ég er sammála afa.
Hafi herra Sigurbjörn Einarsson ávallt þökk fyrir.

Gullbarkar í Salnum í kvöld.

Helgi Rafn Ingvarsson heitir ungur maður sem gerði sér lítið fyrir og samdi óperu sem verður frumsýnd í kvöld í salnum. Hann býr í Kópavogi og á honum hefur sannast að "það er gott að búa í Kópavogi". Kópavogsbær styrkti hann þannig að hann gat helgað sig tónsmíðunum í sumar og bæjaryfirvöldin settu punktinn yfir iið með því að bjóða gestum og gangandi á frumsýningu kl. 20:00 í kvöld og á aðra sýningu á sama tíma annað kvöld.
Ungir,efnilegir og góðir söngvarar úr Söngskólanum í Reykjavík skipa öll hlutverkin sem eru tuttugu og sjö talsins.
Með aðalhlutverkið Tinnu fer ung söngkona frá Svíþjóð Karin Björg Torbjörnsdóttir sem er hálf íslensk eins og föðurnafn hennar ber með sér. Karin Björg hóf ung að syngja í kór, aðeins átta ára gömul en hún stendur á tvítugu.
Hún hefur um tveggja ára skeið stundað söngnám hjá Kerstin Lundin-Grevelius altsöngkonu í Lundi og hefur rödd hennar náð miklum þroska á ekki lengri tíma. Aðalkennari hennar í Söngskólanum í Reykjavík er Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
Óperan fjallar um unga stúlku Tinnu, sem á við geðræn vandamál að stríða. Með hjálp Hrafns ungs elskhuga hennar tekst henni að ná tökum á sjúkdómi sínu. Hlutverk Berglindar syngur Ingunn Gyða Hrafnkelsdóttir, með hlutverk Hrafns fer Haraldur Sveinn Eyjólfsson, hlutverk hálfbróður Tinnu fer Aron Axel Cortez og með hlutverk Þorsteins fer Jósef Lund Jósefsson.
Í stuttu máli:
Tónlist: Helgi Rafn Ingvarsson
Handrit: Árni Krisjánsson og Helgi Rafn Ingvarsson
Ljósahönnuður: Arnar Ingvarsson
Búningar: samsetning og samstarf hópsins alls
Píanóleikarar: Alexander Brian Ashworth og Hrönn Þráinsdóttir
Leikstjórn: Sibylle Köll
Hljómsveitarstjórn: Garðar Cortes.

mbl.is Íslenskir auðmenn tala í 170 þúsund króna gullsíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jenný góð eins og hún er!

Mér þætti mjög miður ef hún Jennifer færi að hrófla eitthvað við útliti sínu sem að mínu mari er fullkomið. Ef hún færi að eiga við augnaumbúnaðinn er hætta á að blikið hverfi og ef hún léti strekkja á kinnum er ég hræddur um að Monu Lisu- brosið færi fyrir lítið. Ég skora því á þig Jennifer Lopez að friða útlit þitt.
mbl.is Jennifer Lopez útilokar ekki lýtaaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannfyrirlitning! Forsjárhyggja.

Þvílík mannfyrirlitning hjá sænskum prestum að telja sig þurfa að hugsa fyrir verðandi brúðhjón.
Hvar á slík forsjárhyggja að taka enda?
Fyrir brúðkaupsnóttina?
Eftir hveitibrauðsdaga?

mbl.is Karlremba að feður fylgi dætrum að altarinu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 1031617

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband