Baugur þarf að birta gögnin sem voru lögð fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær

Getur verið að Baugur eigi einhvern þátt í töfum á heimför sendinefndar AGS?

Vísir segir frá svari Birnu Einarsdóttur fyrir hönd Íslandsbanka:

"Íslandsbanki hvetur Baug Group hf. til að veita almenningi og fjölmiðlum aðgang að þeim gögnum sem lögð voru fram fyrir Héraðsdómi í gærmorgun sé að það vilji forsvarsmanna félagsins að taka af allan vafa um fjárhagsstöðu og málefni þess.
Í tilefni af fréttatilkynningu Baugs til fjölmiðla fyrr í dag vill Íslandsbanki taka fram að það er rangt sem haldið er fram í yfirlýsingu Gunnars Sigurðssonar og Stefáns H. Hilmarssonar að Glitnir og Íslandsbanki hafi í málflutningi fyrir Héraðsdómi að einhverju leyti fjallað um þann sjóð sem stofna átti samkvæmt Project Sunrise verkefninu.

Í tilkynningu Íslandsbanka segir að fram hafi komið opinberlega að alþjóðlega endurskoðunarfyrirtækið Pricewaterhouse Coopers fór yfir tillögur Baugs Group vegna Project Sunrise og mat þær í senn óraunhæfar og óframkvæmanlegar og ekki til hagsbóta fyrir kröfuhafa. Í framhaldi hafi skilanefnd Landsbankans ákveðið að óska eftir greiðslustöðvun BG Holding í Bretlandi.

,,Það er rangt sem haldið er fram í yfirlýsingu Gunnars Sigurðssonar og Stefáns H. Hilmarssonar að bankarnir hafi í málflutningi fyrir Héraðsdómi að einhverju leyti fjallað um þann sjóð sem stofna átti samkvæmt Project Sunrise verkefninu. Sá sjóður kom aldrei til umræðu í Héraðsdómi. Hið rétta er að lögmenn bankanna bentu á misræmi í upplýsingnum um verðmæti dótturfélaga Baugs Group sem félagið hefur veitt kröfuhöfum," segir í tilkynningu Íslandsbanka.

Íslandsbanki fullyrðir að á fundi með almennum kröfuhöfum, sem haldinn var 27. febrúar sl., hafi Baugur Group kynnt efnahagsreikning þar sem eignasafn félagsins var metið mun hærra en efni stóðu til. ,,Í því sambandi er bent á að verðmætustu félögin í eignasafni Baugs Group hafa ýmist verið sett í skiptameðferð, tekin til gjaldþrotaskipta eða yfirtekin af einstökum kröfuhöfum." Fjárhagsupplýsingar sem kynntar voru kröfuhöfum tóku ekki mið af þessari stöðu.

,,Sé það vilji forsvarsmanna Baugs Group að taka af allan vafa um fjárhagsstöðu og málefni félagsins er þeim í lófa lagið að veita almenningi og fjölmiðlum aðgang að þeim gögnum sem lögð voru fram fyrir Héraðsdómi í gærmorgun. Íslandsbanki mun fyrir sitt leyti ekki standa í vegi fyrir birtingu þeirra gagna né greinargerðum lögmanna.""


mbl.is Fall Straums tafði AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ó shit, ætlaði að fara að kommentera á þessa færslu en er einfaldlega of þreytt.... búin að argast og gargast svo mikið út í stjórnmál í dag að ég hreinlega nenni ekki meira :-/

Lilja G. Bolladóttir, 11.3.2009 kl. 04:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1031787

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband