Mikið verð ég feginn að losna við dópistana af svæðinu:-) Stagbætt Skuggahverfishjartað gleðst ;-)

Stórhuga framkvæmdir Samsonsfeðga eru í raun engu áður þekktar hér á landi. Gamli bærinn á eftir að glæðast lífi á ný sem aldrei fyrr gangi hugmyndir þeirra eftir og gleður það gamalt og stagbætt hjarta fyrrum Skugghverfings.
Ég hef að undanförnu verið að viða að mér staðreyndum úr lífi mínu í Skuggahverfinu frá lokum stríðs og minningum um Völund, Freyju, Blikksmiðju Reykjavíkur, Járnsmiðjuna, Hleragerðina, Íþróttahús Jóns Þorsteinssonar, hálfkarað Þjóðleikhús, Arnarhólinn, Kristin Guðnason, Vald Poulsen, Vaðnes, Fiskbúðina Sæbjörgu, Verzlun Halla Þórarins, Clausensbúð hvar ég fann fiskbein í kjötfarsi, Bakarí Bridde, Vaðnes, Billjardinn, Hattabúð Reykjavíkur, Sindra og öll hin fyrirtækin.
Ekki má gleyma öllum persónuleikunum sem koma við sögu og ekki verða nefndir hér.
Hlakka til að fylgjast með um leið og sagan verður skráð.

mbl.is Hugmyndir að nýjum miðborgarkjarna í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1031775

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband