Hvað er svona merkilegt við Morgunblaðið?

Kolbrún Bergþórsdóttir spyr stórt í Blaðinu í dag, en fyrirsögn pistils hennar er: "Hvað er svona merkilegt við KR?".
Einhver undarlegasta spurning sem sett hefur verið fram í íslensku dagblaði frá öndverðu. Mín fyrirsögn er jafn vitlaus og er ætlað að sýna fáránleika spurningar Kolbrúnar Bergþórsdóttur. Ég sem fyrir skömmu skoraði á hana að gefa kost á sér til þingmennsku. Þar skjöplaðist mér.
Bæði Morgunblaðið og KR eru stofnanir í þjóðfélaginu og KR er fjórtán árum eldri en Moggi. Þjóðin yrði frekar berskjölduð og menningarsnauð án þessara virtu menningarstofnana. Einfaldur sannleikur sem ætti að vera stjörnublaðamanninum Kolbrúnu Bergþórsdóttur ljós.
Hún hlessast yfir umfjöllun fjölmiðla, einkum sjónvarpsstöðvanna um þjálfaraskiptin hjá KR sem er í neðsta sæti Úrvalsdeildarinnar um þessar mundir. Gerir Kolbrún sér virkilega ekki grein fyrir að það er frétt og það dagleg frétt að stórveldið hefur ekki komist í gang í sumar þrátt fyrir að vera með langbesta liðið í deildinni? Reykjavíkurstoltið í neðsta sæti!
Auðvitað á að byrja alla fréttatíma á umfjöllun um KR og gengi þeirrar stofnunar.
Frúin á Blaðinu hlýtur að gera sér grein fyrir að við KR-ingar stöndum alltaf með okkar mönnum, en við erum ekki nema um 12% af þjóðinni. Hin 88 prósentin gleðjast ósegjanlega yfir ástandinu og hrakförum stórveldisins. Þessvegna á að taka fyrstu fréttamínútur frá daglega til að gleðja þorra þjóðarinnar.
Reykjavíkurstoltið sem hefur á að skipa bestu knattspyrnumönnum landsins á eftir að rísa úr öskustónni og sýna Kolbrúnu Bergþórsdóttur og öllum hinum andstæðingum okkar hversvegna KR er stórveldi

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skarfurinn

Æ henni Kollu er fyrirgefið, hún hefur hvorki vit né áhuga á knattspyrnu, það hefur hún sjálf sagt margsinnis.. 

Skarfurinn, 1.8.2007 kl. 10:53

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég er bara vonsvikinn því ég hélt að hún tilheyrði sértrúarsöfnuði okkar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 1.8.2007 kl. 11:02

3 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ég skil Kollu vel og spyr bara eins og hún. Þrátt fyrir þín góðu rök. Ég hef heldur ekki vit á knattspyrnu né áhuga. Bara finnst þeir svolítið merkilegir með sig í KR.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 1.8.2007 kl. 18:21

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég skrifaði pistilinn í gamansömum tóni, öllu heldur var það ætlunin hjá mér.

Stundum tekst mér að koma því til skila sem ég kýs en ekki alltaf.

Kolbrún ku gvera mikill KR-ingur inn við beinið.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 2.8.2007 kl. 13:35

5 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ég tók þetta líka sem gaman Heimir minn. Kanski var svarið mitt bara svona vitlaust. 

Jórunn Sigurbergsdóttir , 5.8.2007 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1031835

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband