Klámhundar á kaffihúsi.

Ég fór á kaffihús um daginn eins og svo margir gera hér á landi. Líklega verður þetta í síðasta sinn sem ég sæki þetta kaffihús því á næst næsta borði við mig, vinstra megin sátu fimm útlendingar við kaffi og koníaksdrykkju og ég get svarið það að þeir voru að klæmast.
Að vísu heyrði ég ekki vel orðaskil en heyrði þó orðið "porno" offt bera á góma hjá þeim og var enginn þessara klámfengnu útlendinga undanskilinn.

Hvað eftir annað gekk þjónustustúlkan framhjá borðinu og það gat ekki farið framhjá henni hvað þarna var á ferð, en hún aðhafðist ekkert. Ekki nokkurn skapaðan hlut.

Nú vil ég fara þess á leit við ríkisstjórn og borgarstjórn að svo fljótt sem auðið er verði skipuð sveit eftirlitsmanna sem fari dulbúin á okkar helstu kaffihús og veitingastaði svo ekki sé talað um hótel með upptökutæki og ekki síst heimild til að handtaka hvern þann útlending sem dirfist að tala svo ógætilega hér á landi að til kláms geti talist.
Viðkomandi yrði þegar í stað hnepptur í gæsluvarðhald án dómsúrskurðar (nægjanlegt að leita álits og samþykkis Femínistafélagsins) þar til honum yrði vísað úr landi og fengi aldrei leyfi til að koma hingað aftur.

Ég hef mun feiri tillögur gegn svona svívirðingu handbærar og geri ráð fyrir að mér verði falin yfirumsjón með klámpólitíinu.
Virðingarfyllst,
Heimir.


mbl.is Klámframleiðendur ætla að leita lögfræðiaðstoðar vegna fjárhagslegs tjóns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli einn þeirra hafi ekki skorað hjá 2 íslenskum snótum kvöldið áður og var að deila því með vinum sínum. Lauslæti íslenskra kvenna er löngu orðið heimsfrægt.

Einar Örn (IP-tala skráð) 23.2.2007 kl. 20:09

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég reyni að láta Femínistafélagið ekki sjá svarið.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.2.2007 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 1031783

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband