Færsluflokkur: Íþróttir

Brann brann gegn KR.

Ef ég man rétt er Brann liðið sem KR tók í kennslustund á La Manga um daginn. Þar sem KR-ingar fóru á kostum og settu fjögur mörk hjá norsku strákunum.
mbl.is Fjöldaslagsmál í miðborg Óðinsvéa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú dámar mér ekki.

Hvernig í ósköpunum dettur fólki slíkt í hug eftir viðskilnaðinn við borgina.

mbl.is Segir sögulegt tækifæri gefast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðmenn geta farið kinnroðalaust heim frá La Manga. Lögðu "amatörana" í KR með einu marki.

Eftirfarandi er á Aftenposten.no:

"Ny Rosenborg-seier

KR - RBK 0-1. Alexander Tettey sørget for at Rosenborg igjen kan vise til en seiersrekke.

SLIK VAR: KR - RBK 0-1

Av: Espen Sletvold
Publisert: 23.02.2007 kl. 14:09
Endret: 23.02.2007 kl. 16:18

Da Alexander Tettey sendte Rosenborg i føringen allerede etter tre minutter, tydet det meste at seieren ville bli større en 1-0. Didier Konan hadde allerede misbrukt en hundreprosentsjanse, og de islandske amatørene i KR Reykjavik virket nærmest paralyserte. Konan var også involvert i scoringen. Han fikk stå helt alene i KR-feltet, uten å overliste islendingenes målvakt Stefan Magnusson, men Tettey var sikker på returen.

Det ble imidlertid med den ene scoringen. RBK eide det aller meste av kampen, og hadde ballen stort sett hele tiden, uten at det ga uttelling i mange sjanser. Etter målet var ikke Rosenborg virkelig nærme scoring før Øyvind Storflor ble spilt helt fri Konan på tampen av kampen. Innbytter Storflor fikk aldri skikkelig kontroll på ballen.

Til tross for "bare" 1-0, kunne Rosenborg i hvert fall glede seg over sin andre seier på rad, etter magre resultater i vinter. Et annet lyspunkt var at Didier Konan tidvis imponerte på høyrekanten, og fremstår som et klart alternativ i posisjonen, når eliteserien sparkes i gang 2. påskedag."


Norskir samir við sig.

Mikið er leiðinleg endalaus minnimáttarkennd Norðmanna, endalaust þurfa þeir að klifra upp bakið á okkur og reyna að vekja á sér athygli. Þeir geta ekki talað jákvætt um sjálfa sig án þess að eyna að lítillækka aðra.
Reyndar erum við alveg eins gagnvart Færeyingum........
mbl.is Stórsigur KR gegn norska liðinu Brann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sæði vannýtt auðlind - gaman í vinnunni.

Ég tók eftir frétt um daginn þar sem sagt var frá að mig minnir enskum rakara eða öllu heldur hárskurðarmeistara, sem hefur hafið framleiðslu á hárnæringu úr nautasæði.

Sæði er ákaflega próteinríkt og þess vegna tilvalið til næringar alls vaxtar.
Þar sem nautasæði er ekki öllum innan seilingar leiðir það hugann að nærtækara sæði sem körlum (líka konum) er ákaflega handhægt og oft á tíðum handbært.

Er ekki komin auðveld leið til tekjuöflunar í stað virkjana og álvera að þjóðin leggist í sæðissöfnun með það að markmiði að gera úr verðmætar útflutningsafurðir.
Einhvernveginn hugnast mér sú hugmynd betur, en að stunda fjallagrasatínslu og sölvatekju þótt það séu örugglega arðbærar atvinnugreinar.
Ég sé fyrir mér samhent hjón nú eða hjónaleysi stunda þessa iðju ekki bara í tómstundum sínum heldur sem alvöru atvinnu. Karlinn yrði þá stríðalinn á skyri og kjöti, ostum og fiski enda próteinrík fæða og eftir að hafa legið á meltunnni kæmi húsfreyjan og mjólkaði karlinn ef þannig má að orði komast.
Aðilar þyrftu að sjálfsögðu að vera ekki bara samhentir heldur öllu heldur samfættir.

Ýmis afleidd störf gætu svo hlotist af, svo sem sæðissmalar, sem kæmu á frystibílum og söfnuðu t.d. einu sinni í viku
og oftar ef mörg karldýr eru á heimili, kæmu afurðinni í úrvinnslustöðvar víðsvegar um landið, sem síðan svokallaðir bryndlar (betra orð en brundtæknir) ynnu hin margvíslegustu afurðir úr.

Lengra fer ég ekki með hugmyndina að sinni því viðskiptahugmynd er fædd.


mbl.is Hugmyndir um geimvísindastöð og neðanjarðarhraðlest á Bolafjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitlaus barátta.

Það þarf ekki að hafa mörg orð um dómgreindarleysi fólks þegar kemur að framboði Höllu Gunnarsdóttur til embættis formanns KSÍ.
Auglýsingar í blöðum, linnulítil herferð á bloggsíðum og hver er árangurinn? þrjú atkvæði.

mbl.is Geir Þorsteinsson kjörinn formaður KSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bitur reynsla.

Ég var við nám Í Danmörku og fór á völlinn þegar við settum tvö mörk hjá þeim á Idrætsparken í fótbolta.
Hefðu það verið úrslit leiksins eru líkur á að líf mitt hefði orðið leikur, en ekki aldeilis bara leikur.
Þeir settu fjórtán mörk og þar af þrjú á meðan ég keypti miðana.
Síðan hefur líf mitt líka verið dans á rósum.

Vara við bjartsýni af biturri reynslu.

Ég var við nám Í Danmörku og fór á völlinn þegar við settum tvö mörk hjá þeim á Idrætsparken í fótbolta.
Hefðu það verið úrslit leiksins eru líkur á að líf mitt hefði orðið leikur, en ekki aldeilis bara leikur.
Þeir settu fjórtán mörk og þar af þrjú á meðan ég keypti miðana.
Síðan hefur líf mitt líka verið dans á rósum.

Strákar, ekki láta Danina vinna stórt.

Það verður meginviðfangsefni landsliðsins að verjast því að Danir vinni okkur of stórt. Strax að leik loknum við Tékkana sögðust þeir hafa orðið að vinna þann leik til að fá léttasta andstæðinginn, Íslendinga í næsta leik. Þannig byrjuðu þeir sálfræðihernaðinn ennþá sveittir og sigurreifir eftir Tékkaleikinn.
Þeir eru þegar komnir í samningaviðræður við þjálfarann um framhald því svo eru þeir vissir um að komast í fjögurra liða úrslitin og það ku hafa verið skilyrði fyrir áframhaldandi ráðningu. Í gegnum tíðina hafa Danir haft á okkur andlegt tak þegar til stórræðanna kemur og tel ég leikinn í kvöld enga undantekningu.
Það er því von mín að tapið verði ekki stórt svo við þurfum ekki að læðast með veggjum út vikuna.

mbl.is Mikil eftirvænting hjá handboltalandsliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband