Varpar vonandi ekki rýrð á okkur Framsóknarmenn

Það að Gunnlaugur Sigmundsson annar stærsti eigandi skulda Icelandair þurfi að axla þá óhjákvæmilegu ábyrgð á fyrirtækinu vona ég að verði ekki til þess að kusk falli á hvítflibba okkar framsóknarmanna.

Tengslin við formann okkar skipta auðvitað engu máli í þessu samhengi.


mbl.is Lánastofnanir ráða Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Heimir þú ræður náttúrlega hverra manna þú ert og velur þér foreldra og berð ábyrgð á þeim er það ekki?

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 4.3.2009 kl. 18:09

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það er þannig í minni fjölskyldu.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 4.3.2009 kl. 18:34

3 Smámynd: Hvumpinn

Ef að Gunnlaugur hefði farið þarna einn inn væri hægt að horfa framhjá þessu.  En þarna fór allt Framsóknarfjármálasukkbatteríið inn, Gift og Finnur Ingólfsson.  Af því er fnykurinn.  Gift mun reynast Framsóknarflokknum eitur.

Hvumpinn, 4.3.2009 kl. 18:43

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Við í Samfylkingunni verðum ekki í vandræðum með að redda þessu þegar ríkið, í okkar höndum tekur þetta yfir. Við gerum fyrrverandi viðskiptaráðherra okkar að stjórnarformanni og þingflokksformann okkar sem er vanur húsabraski að forstjóra, og þá verður kátt í Samfylkingarhöllinni.

Sigurgeir Jónsson, 4.3.2009 kl. 22:52

5 Smámynd: Margrét Rún Guðmundsdóttir Kraus

Þú hefur vakið athygli mína fyrir snjallar athugasemdir, Heimir. En er ekki kominn tími til að hætta að gera grín að öllu? Hefurðu ekki aðeins meira fram að færa?

Margrét Rún Guðmundsdóttir Kraus, 4.3.2009 kl. 23:44

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Við Frjálslyndir (framsóknarmenn) vörumst spaug fram í rauðan dauðann Margrét Rún og erum ávallt reiðubúnir að taka með festu og áræðni á aðsteðjandi þjóðfélagsvanda.

Samfylkingarmaðurinn Sigurgeir leysir vandamál síns flokks og Sigurbjörg efast um heilindi okkar

Heimir Lárusson Fjeldsted, 5.3.2009 kl. 09:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 1031791

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband