Samfylkingin dró lappirnar - Björgvin G. Sigurðsson aftraði því að saksóknari fengi nauðsynlegar heimildir

Amx birtir í dag áhugaverðar upplýsingar fengnar úr ranni Björns Bjarnasonar fyrrverandi dómsmálaráðherra. Eins og allir vita veit Björn hvað hann syngur:

"Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að ráðherrar Samfylkingarinnar hafi dregið lappirnar við afgreiðslu frumvarps um sérstakan saksóknara. Hann segir að Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, hafi komið í veg fyrir að saksóknari fengi ríkari heimildir en raun var á.

Þetta kemur fram í nýrri grein sem Björn Bjarnason skrifar hér á AMX. Hann gagnrýnir einnig að eftir hrunið hafi leyndarhyggja og pukur haldið áfram. Björn bendir á að það sé með miklum ólíkindum að fjármálaeftirlitið skuli ekki enn hafa afhent embætti sérstaks saksóknara skýrslur endurskoðunarfyrirtækja, sem falið var að gera úttekt á stöðu mála fyrir og eftir hrunið. Þá segir hann:

„Samfylkingarráðherrar settu ekki aðeins í lága drifið við afgreiðslu frumvarpsins um sérstakan saksóknara heldur snerist viðskiptaráðuneytið undir forystu Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, einnig gegn ákvæðum í frumvarpinu, sem hefðu veitt hinum sérstaka saksóknara ríkari heimildir til að hlutast til um mál á verksviði fjármálaeftirlitsins. Til að greiða fyrir framgangi málsins og forðast efnislegan ágreining, sem hefði getað tafið málið enn frekar við ríkisstjórnarborðið, féllst ég á sjónarmið viðskiptaráðherra.“

Björn Bjarnason gagnrýnir harðleg hvernig haldið er á málum gagnvart öðrum þjóðum og segir að þar ráði þróttleysi við að gæta íslenskra hagsmuna:

„Þróttleysið við að gæta íslenskra hagsmuna með öllum rökum, lögfræðilegum og pólitískum, snýr ekki aðeins að niðurstöðu samninga um Icesave heldur ekki síður að stöðu okkar gagnvart breskum stjórnvöldum, sem sýndu hroka og yfirgang í garð íslensku þjóðarinnar á örlagastundu. Hvað hafa forystumenn Samfylkingarinnar, sem sumir sögðust hreyknir vera í breska Verkamannaflokknum fyrir hrunið, gert til að rétta hlut Íslands gagnvart flokksbræðrum sínum eftir það?

Alþjóðasamningar, lögfræðileg túlkun þeirra og beiting hefur verið talin besta vörn smáríkja gegn hinum stærri og öflugri. Hér hefur utanríkisráðuneytið undir stjórn tveggja ráðherra úr Samfylkingunni ákveðið að láta frekar reyna á pólitíska snilli sína en hin lagalega rétt. Þá er ástæða til að spyrja: Hvað hafa utanríkisráðherrarnir gert á hinum pólitíska vettvangi? Er það kannski leyndarmál eins og hinar lögfræðilegu álitsgerðir?“"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 1031747

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband