Afar athyglisverð grein á AMX.is

 

"Evrópuframganga Ingibjargar Sólrúnar sætir vaxandi gagnrýni 

sjálfstæðismanna 

Innan Sjálfstæðisflokksins vekur Evrópuframganga Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, 

sífellt meiri undrun. Ekki sé nóg með, að hún vilji setja sjálfstæðismönnum afarkosti heldur gefi hún nú til 

kynna, að undirbúningur að aðild að Evrópusambandinu sé kominn á fleygiferð innan 

utanríkisráðuneytisins, þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar. Ingibjörg Sólrún blási ekki aðeins á gagnrýni innan 

eigin flokks um umboðsleysi í Evrópusambandsmálum heldur sjáist ekki fyrir innan ríkisstjórnar. 

Nýjasta dæmið um einstefnu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttir birtist í hrokafullum viðbrögðum hennar við 

gagnrýni Stefáns Jóhanns Stefánssonar, varaborgarfulltrúa Samfylkingarinnar, á umboðsleysi hennar og 

annarra forystumanna flokksins, þegar þau boða aðild að Evrópusambandinu. 

Ingibjörg Sólrún var spurð um þá skoðun Stefáns Jóhanns, að Samfylkingin væri ekki í stakk búinn til að 

styðja aðild að Evrópusambandinu ef hún ætlaði að virða sínar eigin lýðræðislegu samþykktir, í fréttatíma 

Stöðvar 2 á Þorláksmessu. Ingibjörg Sólrún svaraði á þennan veg: 

„Ég er nú ekki sammála honum [Stefáni Jóhanni] því að það hefur verið mikil Evrópuumræða í 

flokknum árum saman raunar og fyrir síðustu kosningar þá var tekin heilmikil atrenna að 

þessum málum og m.a var vinnuhópur sem að vann í því að móta samningsmarkmiðin og í 

honum voru fjölmargir einstaklingar sem að hafa mikla þekkingu á málaflokknum.“ 

Athyglisvert er, að í þessu svari, tekur Ingibjörg Sólrún ekki af skarið um, hver sé stefna Samfylkingarinnar 

í Evrópumálum – að margir hafi talað um málið jafngildir því ekki, að því sé lokið. Raunar benti Stefán 

Jóhann á það í gagnrýni sinni, að vinnuhópurinn, sem Ingibjörg Sólrún nefnir, hafi aldrei lokið störfum. Það 

liggi alls ekki fyrir nein samningsmarkmið af hálfu Samfylkingarinnar. 

Heimir Már Pétursson, fréttamaður á Stöð 2 og yfirlýstur samfylkingarmaður, tók viðtalið við Ingibjörgu 

Sólrúnu og hefur eftir henni, að „heimikil undirbúningsvinna“ sé í gangi undir hennar stjórn í 

utanríkisráðuneytinu, enda vilji áköfustu samfylkingarmennirnir „sækja um aðild að Evrópusambandinu 

snemma á nýju ári.“ Telji Ingibjörg Sólrún, mikilvægt sé „að ferlið hefjist sem fyrst“ og á þá væntanlega 

við aðildarferlið. Vill hún „taka ákvörðun um þetta strax í febrúar á næsta ári og fara svo að vinna að 

málinu í framhaldinu.“ 

Heimir Már spurði Ingibjörgu Sólrúnu, hvort hún væri bjartsýn á, að hún fengi sjálfstæðismenn með sér í 

þessa Evrópuferð. Hún svaraði: 

„Ég er já frekar bjartsýn á það. En auðvitað getur maður ekkert sagt um það fyrirfram. Ég 

þekki ekki svo innviðina í Sjálfstæðisflokknum að ég geti spáð fyrir um það. En ég er 

bjartsýn.“ 

Þá spurði Heimir Már, hvort Ingibjörg Sólrún vildi, að gengið yrði til þingkosninga í vor, ef 

Síða 1 af 2

sjálfstæðismenn fylgdu henni ekki, og svaraði hún: „Það gæti alveg farið svo já.“ 

Smáfuglarnir segja, að þessi jólaboðskapur formanns Samfylkingarinnar hafi ekki vakið neina gleði meðal 

þingmanna Sjálfstæðisflokksins og þeim þyki í raun meira en nóg komið af þessu tali Ingibjargar Sólrúnar 

um stefnu og störf Sjálfstæðisflokksins. Hitt sé síðan hlálegt, að hún tali þannig ögrandi til samstarfsflokks í 

ríkisstjórn, án þess að hafa skýrt umboð í Evrópumálum innan 

Þá kemur sjálfstæðismönnum í opna skjöldu, að innan utanríkisráðuneytisins sé hafin „heilmikil 

undirbúningsvinna“ vegna aðildar Íslands að Evrópusambandinu, þvert á það, sem segi í stjórnarsáttmála 

ríkisstjórnarinnar. Orð Ingibjargar Sólrúnar stangist auk þess á við það, sem kom fram í máli Högna 

Kristjánssonar, yfirmanns Evrópuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, á hádegisfundi sjálfstæðismanna um 

Evrópumál í Valhöll mánudaginn 22. desember. Högni hafi einmitt verið spurður um það á fundinum, hvort 

starfsmenn utanríkisráðuneytisins hefðu hafið undirbúning að aðild Íslands að Evrópusambandinu og sagt 

svo ekki vera. 

Í ljósi þess, hvernig Ingibjörg Sólrún talar án nokkurs umboðs um Evrópusambandsaðild inn á við, hafa 

sjálfstæðismenn vaxandi áhyggjur af því, hvað hún segi um málið í samtölum við erlenda sendiherra eða 

utanríkisráðherra. Það gefi ekki rétta mynd af pólitískum umboði hennar innan eigin flokks eða 

ríkisstjórnar, ef hún láti eins og Ísland sé á fleygiferð inn í Evrópusambandið. "

Það er með ólíkindum að Ingibjörg skuli fara fram með þessum hætti og nánast blása á stjórnarsáttmálann. 


mbl.is Ísland á hálfvirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 1031791

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband