Og þú líka Jóhannes. Ég hélt þú værir skýrari

"Vísir, 19. des. 2008 14:54

Ósáttur með 300 milljóna sekt - ábót við nýjustu Baugsákæruna

mynd
Jóhannes Jónsson.

Jóhannes Jónsson, stofnandi og eigandi Bónusverslananna, er afar ósáttur með úrskurð Sameppniseftirlitins sem hefur lagt 315 milljón króna sekt á Haga sem reka meðal annars verslanir Bónuss fyrir brot á samkeppnislögum.

,,Er þetta ekki bara ábót á það sem kom í gær?" sagði Jóhannes spurður um viðbrögð við úrskurði Samkeppniseftirlitsins og vísaði til þess að Ríkislögreglustjóri gaf í gær út ákæru á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu systur hans, Tryggva Jónssyni, Baugi og Gaumi fyrir meint skattalagabrot á árunum 1998 til 2002. ,,Þetta er rosalega skemmtilega skipulagt hjá þeim."

Samkeppniseftirlitið telur að brot Haga hafi verið alvarleg og til þess fallin að valda atvinnulífinu og almenningi miklu samkeppnislegu tjóni. Brotin áttu sér stað í verðstríði Bónuss við aðrar lágvöruversalanir þegar mjólk og mjólkurvörur voru seldar undir kostnaðarverði. Tap Haga af verðstríðinu var um 700 milljónir krónur.

,,Ég get ekki séð að nokkur aðili hafi orðið fyrir tjóni nema við," segir Jóhannes. Neytendur hafi ekki orðið fyrir tjóni en nú sé ætlast til þess að Bónus leggi 300 milljón álag á neytendur.

,,Samkvæmt samkeppnislögum á ekki að vera samkeppni hér á landi heldur eigum við að hleypa öðrum fram úr okkur. Ef þú ert búinn að vera fyrstur í mörg ár áttu að fara að hægja á þér og hleypa öðrum fram úr," segir Jóhannes og bætir við að það eigi til að mynda ekki vel í íþróttum."

 Af visir.is is í dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 1031843

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband