Var Jóhannes í Bónusi að segja ósatt.

Mér þykir einkennilegt ef sá mæti maður Jóhannes Jónsson kenndur í Bónus hefur alltaf sagt ósatt þegar hann talaði um bátinn sinn í Florida.
Ef ætti að kalla alla þá fyrir sem heyrt hafa ummæli hans um Víkinginn sinn í Flórída, sem hann lét falla árum saman í flugvélum, veitingastöðum og annarsstaðar sem margir "áttu" að heyra tæki það marga mánuði að hlýða á framburð þeirra.

Mér þykir það helvíti hart að sonur hans og verjandi hans ásamt Tryggva Jónssyni skuli komast upp með það eiðsvarnir fyrir rétti að segja Jóhannes Jónsson kenndan í Bónus ekki mann orða sinna.


mbl.is Yfirheyrslum yfir Jóni Gerald lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir eru orðnir óþarflega hrokafullir og stórbokkalegir.    Spurning hvort að þeir verði ekki hankaðir á tæknilegum mistökum fyrir rest.    Það er alveg ljóst að þessir menn eru ekki þeir heiðarlegustu í heimi en nær refsiramminn yfir gjörðir þeirra til að þau teljist glæpsamleg?     Af glottinu á þessum geðþekku og traustvekjandi mönnum að dæma þá er útlit fyrir að þeir séu afar vissir í sinni sök og finnist þetta allt ein alsherjar tímasóun.   Það er þvílík fyrra ef satt er að þeir trúi því að Davíð Oddsson sé eitthvað viðriðinn þetta mál.     Jón Ásgeir segir sjálfur að Baugur sé hans hugarfóstur.    Baugur er stofnaður fyrir framan nefið á ríkisstjórn sem hafði það að yfirlýstri stefnu að setja lög sem koma í veg fyrir auðhringamyndun.     Baugur er fyrirtæki sem situr beggja megin borðsins.    Þeir byrjuðu sem heildverslun fyrir almenning án milliliða og þannig ná þeir niður vöruverði.   Nú eru fáir byrgjar/heildsalar sem geta keppt við þá á nokkru sviði.    Þeir eiga svo mikið lausafjármagn að þeir geta keypt og staðgreitt á góðu verði það sem þá lystir og boðið á betir kjörum en aðrir sem liggja með sinn lager á lánum.    

Þessir menn hafa nýtt sér tækifærin sem skapast hafa i óstjórnartíð undanfarinna uppgangsára.     En málið er illa reifað og sakarefnið ekki nógu vel skilgreint fyrir mitt leyti og þar af leiðandi veðrur þetta allt að hálfgerðum sirkus.       Vona þó að réttlætið sigri að lokum.   Hverjum svo sem það kann að þjóna.

Eru Jóhannes Jónsson og Tryggvi Jónsson bræður?

Jón Dan (IP-tala skráð) 23.2.2007 kl. 22:05

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ekki veit ég um skyldleika.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.2.2007 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 1033459

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband