Furðu lostinn

Afskaplega á ég bágt með að trúa einhverju misjöfnu á Jón Ásgeir Jóhannesson. Svavar Halldórsson hlýtur að stjórnast af andsamfylkingarlegum öflum þegar hann ítrekað reynir að grafa upp ávirðingar á þennan sómamann. Ekki er ólíklegt að ritstjóri Morgunblaðsins eigi hér hlut að máli, en hann hefur allt á hornum sér gagnvart sómakærum stuðningsmönnum Samfylkingarinnar.


mbl.is Líður ekki eins og glæpamanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

alveg dásamlegt að sjá ykkur sjallana klína samfylkingunni á þetta.  Veit ekki betur en báðir málsaðilar hafa verið bendlaðir við Samfylkinguna þegar það hefur þótt  henta sjöllum og svo komast sjallar nú að þetta sé allt Samfylkingunni að kenna!  Þið eruð óborganlegir.

Óskar, 15.11.2012 kl. 22:25

2 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Sumir glæpamenn virðast vera með HRétt í vasanum. Það þarf að stofna sjóð til þess að standa straum af kostnaði þeirra sem lenda í þessari aðstöðu eins og Svavar. Það geta ekki allir seilst í þýfi á aflandseyjum til þess að borga svona hluti eins og glæpamennirnir gera.

Guðmundur Pétursson, 15.11.2012 kl. 22:28

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Tek undir með Óskari. Einstaklega heimskuleg færsla hjá síðuhafa.

hilmar jónsson, 15.11.2012 kl. 23:19

4 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Mjög hnyttin og góð færsla.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 16.11.2012 kl. 09:02

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þú ert að grínast Heimir er það ekki?

Sigurður Haraldsson, 16.11.2012 kl. 09:06

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hver þorir að hallmæla Jóni Ásgeiri eftir að Hæstaréttur tók málstað hans?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 16.11.2012 kl. 09:22

7 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Vonandi verður þetta vatn á millu þeirra sem hallmæla honum! Bara sem flestir og ef hann kærir þá verður Hæstiréttur í gíslingu hanns við að dæma í þeim málum.

Sigurður Haraldsson, 16.11.2012 kl. 10:55

8 Smámynd: Landfari

Góuður Heimir. :)

Alveg með ólíkindum hvað sumir geta verið blindir á kaldhæðnina. Veit ekki hver þessi Óskar er en hilmar sér allt gegnum gríðarlega sterk flokksgleraugu. Bókstaflega sama hvað það er.

Landfari, 16.11.2012 kl. 23:21

9 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Takk Landfari :)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.11.2012 kl. 11:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 1031842

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband