Nóg er til af skiltum hjá Vinstri grænum

Ég vil benda Ágústu Hafberg á að þær vinkonurnar geta leitað til skiltagerðar BSRB og Vg að Suðurgötu í Reykjavík við hlið Hjálpræðishersins. Þar er að finna allar tegundir skilta sem gagnast geta þeim í baráttunni við vanhæfa ríkisstjórn sem yfirgefur Alþingi um bakdyrnar í fylgd löggæslumanna.
mbl.is Þingið er óstarfhæft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hreinn Sigurðsson

Góður.

Hreinn Sigurðsson, 6.10.2010 kl. 16:59

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Assgoti Góður Vonandi lesa þær þetta

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 6.10.2010 kl. 17:11

3 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Það vissulega ekki óvitlaus fullyrðing að þingið sé óstarfhæft, en það þarf að ræða það bara hreint út, hvers vegna svo sé.  Þingið er ekki óstarfhæft því að þingmenn nenni ekki að vinna vinnuna sína.  Þingið er fyrst og fremst óstarfhæft, því þingmönnum er meira og minna bannað að vinna vinnuna sína.

  Það vita það allir sem að vilja vita, að dagskrá þingsins er stjórnað af Framkvæmdavaldinu (ríkisstjórn) og mál komast ekkert á dagskrá nema þau séu ríkisstjórninni þóknanleg.  Í heilar þrjár vikur, hefur verið beðið um fund í Viðskiptanefnd Alþingis, vegna gengislánadómsins.  Sá fundur hefur ekki enn verið haldinn.  Svarið við því hlýtur að liggja í augum uppi.  Annað hvort vill ríkisstjórnin ekki málið á dagskrá, eða hefur ekki glóru um hvernig hún snúa sér í málinu, nema á þann hátt, sem arfavitlaust frumvarp Árna Páls boðar.  En að leyfa þingnefndum að ræða málið með fagfólki og mynda sér skoðun á því og jafnvel koma með lausnir, nei slíkt er ekki í boði.

 Ríkisstjórnin hefur í nokkur skipti blásið til blaðamannafunda þegar þolinmæði fólks hefur verið á þrotum og boðað aðgerðir fyrir fólkið í landinu.  Þessar aðgerðir hafa oftar en ekki verið kynntar sem lokasvar stjórnvalda.  Síðan hefur þessu verið keyrt í gegnum þingið og efasemdarmenn þeirra úrræða, gjarnan sakaðir um þvælast fyrir stjórnvöldum og uppbyggingunni í landinu.  Breytingartillögur vegnar og metnar eftir flokksskírteinum og jafnvel gengið svo langt að þaggað er niður í stjórnarþingmönnum, sem eiga ekki upp á pallboðið hjá leiðtogum stjórnarflokkanna.

 Svo er þessum málum, misundirbúnum, hent í gegnum þingið, sem allsherjarlausn og önnur mál rædd.  Önnur mál eins og súlustaðabann, sólbaðsstofubann, kynjakvótar og þrætur um stuðning við Íraksstríðið.  Á meðan þessi "önnur mál" eru rædd koma í ljós hver villan af fætur annarri í nýsamþykktum aðgerðum ríkisstjórnarinnar.  Þingmenn biðja slag í slag undir liðnum, fundarstjórn forseta um að þessir hnökrar á nýsamþykktum lögum séu ræddir og lausna leitað.  Svarið við þeirri beiðni er alla jafna það, að þetta mál sé ekki á dagskrá og halda skuli sig við áður auglýsta dagskrá.  Gildir þá einu hver dagskráin er eða alvarleiki þess máls er beðið er um umræður vegna.  

Svo endurtekur þetta ferli sig, þegar að allt er komið í hönk aftur. Ný úrræði lokaúrræði til lausnar skuldavandans.  ................................... En eftir standa þúsundir fjölskyldna eignalausar á leiðinni á götuna.

 Vandamál þingsins er því fyrst og fremst úrræðaleysi stjórnvalda og sá brestur þeirra að geta ekki viðurkennt það og beðið þingið um hjálp á ærlegan hátt, án skilyrða.

Kristinn Karl Brynjarsson, 6.10.2010 kl. 17:46

4 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Mætti etv brenna þessa skiltahrúgu V-G(eðveikra) og ekki væri það verra ef að þeir sætu á hrúgunni....

Óskar Guðmundsson, 6.10.2010 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband