Fákeppni á matvörumarkaði.

Hagar stjórna verðlagningu matvæla og fatnaðar hér á landi. Þar er auðvitað ekki um samráð að ræða heldur einráð. Samkeppnisyfirvöld gætu sem hægast haft aðsetur í húsakynnum Haga og fylgst þar með verðlagi á landinu. Myndi það fyrirkomulag spara stórar fjárhæðir og gæti sparnaðurinn runnið til Neytendasamtakanna, því það hlýtur að vera vandræðalegt fyrir þau að þiggja beina styrki frá Jóhannesi sjálfum.
Þá væri líka auðveldara fyrir feðgana að bjóða múturnar sem þeim er svo eðlislægt.
mbl.is 11 fyrirtæki sektuð um ólöglegt verðsamráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér er ólöglegt verðsamráð og fákeppni.  Það er eins og hugtökin nái bara yfir olíufélög. Verðlagstjórn var afnumin af hálfu ríkisins til að efla samkeppni, sem átti svo að leiða til lægra vöruverðs. Árangurinn er hæsta vöruverð í heimi! Það ætti að gefa umbjóðendum okkar medalíu á  rassgatið fyrir að standa svona vel að verki. Samkeppni er ekki frjáls hér. Okurauðhringarnir, sjá til þess að kaupa alla samkeppni upp, jafn óðum. Þeir hafa valdið. Því verður ekki breytt fyrr en menn gera sér ljósar þessar staðreyndir og viðurkenni þær.

Jón Steinar Ragnarsson, 24.1.2007 kl. 15:01

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Heyr!

Ég hef lengi talað fyrir daufum eyrum.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 24.1.2007 kl. 15:08

3 identicon

11-11, Krónan, Nettó, Samkaup, 17, Retró, Gallabuxnabúðin, Jack and Jones, Levis, Dressmann, Blend o.fl. o.fl.

Hvernig leggur þú til að Hagar stjórni verðum í t.d. þessum matvæla- og fataverslunu?

asdf (IP-tala skráð) 24.1.2007 kl. 15:48

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Kæri asdf þú hlýtur að vita að Hagar selja mikið meira af fötum en þessar verslanir til samans.

Þá eru þessar matvöruverslanir bara smá sjoppur í samanburði við 10-11, Hagkaup, Bónus og Bónus stórverslun (man ekki í svipinn hvað hún heitir).

Þá talaði ég ekki um blómaverslanir, hljómtækjaverslanir, olíufélag, flugfélag, öryggisþjónustur o.m.fl.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 25.1.2007 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband