"Jón Ásgeir hefur á umliðnum árum gert meira fyrir íslenskt samfélag en aðrir samtíðarmenn hans og þótt aftar í söguna væri farið"

"„Fyrir mér er ekki vafi á því að Jón Ásgeir hefur á umliðnum árum gert meira fyrir íslenskt samfélag en aðrir samtíðarmenn hans og þótt aftar í söguna væri farið. Ég læt það þó liggja á milli hluta að reyna að finna honum verðugan stað í sögu merkra Íslendinga á liðinni öld og þessari, en í mínum huga er það fullljóst að þar mun sagan skipa honum í fremstu röð. Jón Ásgeir var og er alfa og omega þeirrar útrásar og uppbyggingar sem einkennt hefur íslenskt viðskiptalíf á umliðnum árum. Hann hefur verið leiðandi í útrás íslenskra fyrirtækja sem hefur haft gríðarleg áhrif á lífskjör og sjálfstraust okkar litlu þjóðar. Um það get ég sjálfur vottað. Án Jóns Ásgeirs og frumkvöðlastarfs hans, hefði ég aldrei lagt af stað til annarra landa í leit að viðskiptatækifærum. Án Jóns Ásgeirs væri því fjórða stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu ekki í eigu Íslendinga í dag. Á fáum árum hafa Íslendingar orðið gjaldgengir í alþjóðlegum viðskiptum og er það einkum og sér í lagi Jóni Ásgeiri að þakka.“

Pálmi Haraldsson, oft kenndur við Fons, í blaðagrein í Morgunblaðinu 5. júlí 2005 í tilefni af því að ákærur voru gefnar út í svokölluðu Baugsmáli"

Þannig hvísluðu smáfuglar amx.is í eyra mitt áðan. 



mbl.is Glitnir: „Skýstróks-áætlunin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Polli

Fel Jóni Ásgeiri vegu þína og treystu honum, hann mun vel fyrir sjá.

Polli, 12.5.2010 kl. 13:03

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ég er orðlaus. Er ekki hægt að finna fleiri svona gullkorn!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 12.5.2010 kl. 13:05

3 Smámynd: Reynir W Lord

Glæsilegt ekkert annað. Að hrósa svona manni fyrir að vera einn af mörgum sem lögðu Ísland í rúst og nánast við gjaldþrot. Svei svei segi ég .

Og mæli með að sem flestir sjái sér fært að hætta að versla við bónus og snúa okkur að þeim sem eiga það skilið að við verslum við..

http://www.facebook.com/home.php?ref=logo#!/pages/Haettum-ad-versla-vid-Bonus/124494270895503?ref=mf

Reynir W Lord, 12.5.2010 kl. 13:09

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Polli er fyndinn;)

Silla, amx er vel á verði.

Reynir, ég er löngu hættur að versla við glæpamennina.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.5.2010 kl. 13:29

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Manni hefur orðið bumbult af minna tilefni

Finnur Bárðarson, 12.5.2010 kl. 14:20

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það er góð megrunarleið að lesa ummæli Pálma.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.5.2010 kl. 14:26

7 Smámynd: Hamarinn

Þegar ég hóf lestur þessa pistils, hélt ég að þú værir annaðhvort að grínast eða orðinn verulega bilaður.  En í lokinn sá ég að það var ekki um það að ræða, heldur lofræðu eins svikara um annan.

Þessi grein lýsir þessum aumingjum nákvæmlega eins og þeir eru.

Hamarinn, 12.5.2010 kl. 18:36

8 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hamarinn, þakka þér fyrir að telja mig ekki verulega bilaðan......

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.5.2010 kl. 18:52

9 Smámynd: Polli

Spilltir Íslendingar ættu að stofna stjórnmálaflokk. Hann yrði ótrúlega stór og líklegur til afreka í næstu kosningum. Heimir mundi aldrei kjósa þann flokk, enda góður og grandvar Íslendingur, pínulítið svifaseinn eins og svo margir sem enn hanga á stuðningi við ...........................

Polli, 12.5.2010 kl. 19:15

10 Smámynd: Landfari

"Menn syrgja naumast þá tíma þegar verslanakeðjur voru undir stjórn ævintýramanna eða alls engri stjórn eins og Mikligarður heitinn. Hver ætli hafi borgað 700 milljóna kr. gjaldþrot þeirrar keðju eða 300 milljóna kr. gjaldþrot annarrar keðju, nefnd Grundarkjör? Svarið liggur í augum uppi. "Neytendur borguðu brúsann," var skrifað í aðsendri grein í Morgunblaðinu í febrúar árið 2000. Og hver hélt um penna? Maðurinn heitir Jón Ásgeir Jóhannesson. "

Úr Viðskiptablaðinu 15. apríl 2010.

Landfari, 12.5.2010 kl. 19:18

11 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Polli, við kjósum varla líkt.

Landfari, þakka þér þessa athugasemd. Lengi er von á stuðningi!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.5.2010 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 1031723

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband