Bloggað af þráhyggju

Sandra hefur sótt um skilnað við Jesse James. Ég nenni varla að blogga um það og benda henni á að ég er einhleypur. Ég blogga bara um Söndru vegna þess að engin frétt er í augnablikinu á mbl.is um Ólaf Ragnar eða Jón Ásgeir.

Til að viðhalda þráhyggjunni þarf ég að blogga um þá félaga, annan eða báða minnst tvisvar á dag. Annars get ég ekki talað um ekta þráhyggju. Stundum hleyp ég útundan mér og blogga um peð eins og Pálma Haraldsson, Hannes Smárason eða önnur dusilmenni, en fæ litla sem enga nægju úr því, hvað þá fullnægju.

Jón Ásgeir er ekki búinn að fá nóg af kókinu og man ekki lengur hvar hann faldi marga  milljarða króna sem hann hirti úr bönkunum skömmu fyrir hrun. Hann var að vísu búinn að skuldsetja mömmu sína og pabba fyrir meira en fimmtíu þúsund milljónum króna hvort fyrir sig persónulega, en var illa við að vera í persónulegum ábyrgðum sjálfur, enda skapar það bara óþægindi og hann gæti lent á svarta lista bankanna. 

Jæja þá er ég búinn að blogga svolítið fyrir þráhyggjuna þó fátt væri um tilefni. 


mbl.is Sandra sækir um skilnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Gott mál haltu þráhyggjunni gangandi Ef það kallast þráhyggja að benda á staðreyndir um útrásarvíkinga

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 28.4.2010 kl. 14:16

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Mér líður snöggtum betur.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 28.4.2010 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1031775

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband