Ríkisstjórnin er í raun fallin

Tveir þriðju hlutar atkvæðabærra manna ætla að kjósa gegn gjörðum ríkisstjórnarinnar í Icesave-málinu. Þarf frekari vitna við?
mbl.is Bjarni: Snýst um líf ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Skýr vilji þjóðarinnar.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 12.1.2010 kl. 20:02

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Svo sannarlega.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.1.2010 kl. 20:03

3 identicon

Þrátt fyrir allt þá mýtur ríkisstjórnin stuðnings 53% landsmanna. Þetta segir okkur að stjóranarandstöðunni og þá sérstaklega Sjálfstæðisflokknum, hefur ekki tekist að klína Icesave á ríkisstjórnina.

Valsól (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 20:04

4 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

Sammála þó fyrr hefði verið

Marteinn Unnar Heiðarsson, 12.1.2010 kl. 20:50

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er alltof snemmt að fagna falli ríkisstjórnarinnar.  Vika er langur tími í póitík hvað þá rúmar 6 til 8 vikur.

Vek á því athygli að sú könnun sem þið vitnið í er gerð á netinu. Þar með eru ákveðnir hópar útilokaðir frá þátttöku saman ber álit karlkyns stjórnsýslufræðingsins sem var í Silfrinu á sunnudaginn var. Þar var hann að tala um undirskriftasöfnun Indefens hópsins og skoðanakönnun sem forsetinn vitnaði til þegar hann hvað upp sinn dóm 5. jan.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 12.1.2010 kl. 21:15

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Mér er enginn akkur í að stjórnin fari frá strax, því lengur sem hún situr, því lengra verður fríið sem hún fær;)

Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.1.2010 kl. 21:23

7 Smámynd: Auðun Gíslason

 

skarfur

Samkomulag milli Hollands og Íslands um IceSave

11.10.2008

Að loknum uppbyggilegum viðræðum hafa hollensk og íslensk stjórnvöld náð samkomulagi um lausn mála hollenskra eigenda innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans.

Fjármálaráðherra Hollands, Wouter J. Bos, og fjármálaráðherra Íslands, Árni M. Mathiesen, tilkynntu þetta.

Ráðherrarnir fagna því að lausn hafi fundist á málinu. Wouter J. Bos kvaðst einkum ánægður með að staða hollenskra innstæðueigenda væri nú skýr. Árni M. Mathiesen bætti við að aðalatriðið væri að málið væri nú leyst.

Samkomulagið kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarksfjárhæð 20.887 evrur. Hollenska ríkisstjórnin mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna.

Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)

16.11.2008

Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum.

Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna. Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið, undir forystu Frakklands, taki áframhaldandi þátt í að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.

Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrir­greiðslu sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) undanfarnar vikur. Erindi Íslands hjá IMF verður tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum miðvikudaginn 19. nóvember.

Umsamin viðmið

  1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í lög­gjöf­ina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahags­svæð­ið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
  2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samninga­viðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóða­gjald­eyris­sjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
  3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.

Reykjavík 16. nóvember 2008

Kannski ekki úr vegi, að minna á þessar samninga ríkisstjórnar Geirs. H. Haarde nú þegar ásakanirnar  dynja á núverandi ríkisstjórn.  Svona hófst í raun þessi samningaruna.  Svona var ríkissjóður skuldbundinn í byrjun þessa leiðindamáls!  Nú virðist stór hluti þjóðarinnar telja að Jóhanna og Steingrímur J. eigi sök á hvernig komið er, og þau sæta ásökunum um hin villtustu svik við land og þjóð.  Munið að Icesave-myllan fór af stóð 2006 með vilja og vitund íslenskra yfirvalda

Auðun Gíslason, 12.1.2010 kl. 22:17

8 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Við almenningur áttum stóran þátt í því að koma stjórn Geirs H frá en það bætir ekkert samningsstöðuna að klúður þeirrar stórnar var algert bæði fyrir og eftir hrun við getum ekki fallist á að borga þessar upphæðir til þess eru þær allt of háar sama hvað hefur verið samþykkt eða á eftir að samþykkja réttlæti er það sem við þurfum við erum eingin stríðsþjóð eins og einræðisríki Hitlers en upphæðirnar sem eru að baki icesave eru slíkar að það mætti halda að við hefðum kastað sprengjum á þessar þjóðir og leitt yfir þær hörmungar en svo er ekki þess vegna verðum við að standa vörð um það sem gerspilltir ráðamenn eru að semja um bæði firr og nú til að geta búið á Íslandi í framtíð.

Sigurður Haraldsson, 13.1.2010 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband