Færsluflokkur: Íþróttir

Happafengurinn Stefán Logi


stefanlogi.jpg"Ég held að það sé óhætt að fullyrða að Stefán Logi hafi hitt naglann á höfuðið í viðtali við fótbolta.net nú á dögunum. Það er ánægjulegt þegar menn tala jafnvel um klúbbinn og Stefán Logi enda hefur hann unnið hug og hjörtu stuðningsmanna félagsins og þá ekki bara vegna frammistöðu sinnar á vellinum. Við fáum hér að láni hluta viðtalsins og birtum hann hér á síðunni. Það er óhætt að segja að það sé aðeins einn Stefán Logi!

“Fyrst og fremst þá er ég gríðarlega stoltur yfir því að vera Íslendingur og KR-ingur, ekki bara vegna þess að félagið er staðsett í vestur hluta Reykjavíkur og stofnað 1899, heldur vegna þess að það er svo stór hluti af íslenku íþróttamannlífi hvort sem um er að ræða fótbolta, borðtennis, handbolta, körfubolta, keilu, pílu, badminton, taekwondo, sund, skíði, glímu eða einhverja aðrar íþróttir sem kunna að vera starfræktar innann félagsins.

Á tímum eins og nú blasa við okkur Íslendingum er gott að hugsa til þess að vera hluti af einhverju þar sem félagsskapur, samheldni, vinátta, metnaður og gagnkvæm virðing myndast og viðhelst. Miðað við flest það sem ég hef upplifað hjá KR, þar með talið fólkið sem kemur að félaginu og ekki má gleyma sögunni sem KR á að baki, þá finnst mér gott að vita að ég er partur af þeirri sterku heild sem er og kemur til með að vera í Vesturbænum um komandi ár í gegnum súrt og sætt.

Öll íþróttafélög, meðlimir þeirra sem og bara allir Íslendingar þurfa nú að standa sem ein heild og reyna vinna meira saman að því halda einhverri ákveðinni stefnu lengur en í örfáa mánuði í senn svo það skili tilsettum árangri. En auðvitað gerast góðir hlutir hægt og því þarf smá þolimæði.”"

Ég tek mér það bessaleyfi að birta hér greinarstúf af KR Reykjavík.is og vona að mér fyrurgefist. 


Bróðir KR-ings kjörinn íþróttamaður ársins

Sjaldan hefur þjóðin verið sammála um nokkurt málefni sem kjör Ólafs Stefánssonar íþróttamanns ársins 2008.

Jafnvel ég get sætt mig við kjörið þótt Ólafur sé ekki KR-ingur. 


mbl.is Ólafur Stefánsson íþróttamaður ársins 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Daníel Már og Erla Rós

Það er með miklum ólíkindum hve þessi sigur hefur glatt mörg íslensk hjörtu. Kristján kaupmaður Jónasson, Daníel Már Aðalsteinsson afastrákur og Erla Rós afastelpa hafa vafalaust stokkið hæð sína í loft upp.
mbl.is Liverpool gjörsigraði Newcastle
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill styrkur fyrir KR

Það er mikill styrkur og góður fengur fyrir KR að endurheimta hinn snögga og skynsama Gunnar Kristjánsson í liðið.

Velkominn Gunnar. 


mbl.is Gunnar til liðs við KR-inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju KR-ingar um heim allan

Nú er bara að ná í Íslandsmeistaratitilinn að ári og bæta þar með enn einni stjörnunni við merkið á búningum félagsins til merkis um 25 Íslandsmeistaratitla.

Viltu hafa það í huga Logi? 


mbl.is KR bikarmeistari í ellefta sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bikarinn heim er einlæg ósk

Ég er hjartanlega sammála Loga Ólafssyni að Grafarvogsbúar eru sýnd veiði en ekki gefin. Þeir hafa á að skipa baráttuglöðu liði sem kann ekki að gefast upp, en ég vona samt að bikarinn komi heim í Vesturbæinn enn einu sinni.
mbl.is Logi: Þeir eru reynslunni ríkari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Semdu nú vel stelpa

Margrét Lára Viðarsdóttir á aðeins skilið það besta. Vonandi verður dvöl hennar í LA henni til ánægju og ábata.
mbl.is Los Angeles með rétt til að semja við Margréti Láru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KR eru bestar

Er nokkrum blöðum um það að fletta hverjar eru landsins bestar í fótbolta kvenna?

Til hamingju stelpur og ekki síst Helena ÓlafsdóttirKissing

Nú held ég að Siggi frændi í USA hoppi hæð sína í loft uppSmileGrin 


KR-konur laaaaaaaangbestar

Er nokkrum blöðum um það að fletta hverjar eru landsins bestar í fótbolta kvenna?

Til hamingju stelpur og ekki síst Helena ÓlafsdóttirKissing

Nú held ég að Siggi frændi í USA hoppi hæð sína í loft uppSmileGrin 


mbl.is KR bikarmeistari 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sætur KR-titill

Alltaf eru KR sigrarnir sætir, en sætastir eru þeir í úrslitaleik við Val.
mbl.is KR Reykjavíkurmeistari kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 1031617

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband