Færsluflokkur: Dægurmál

Hjúkrunarfræðingar ekki fara í spor BHM

Hver og einn heilbrigðisstarfsmaður sem ég hef hitt á 7 vikna göngu minni um kerfið á mitt hrós og þakklæti, en samtök heilbrigðisstéttanna fá falleinkunn. BHM kunni ekki að lesa í aðstæður þegar farið var af stað í verkfallið og hafa þeir starfsmenn valdið sjálfum sér og þjóðinni gífurlegum skaða. Það er löngu tímabært að taka af þeim völdin og setja lög á aðgerðir þeirra. Einstakir félagsmenn bíða eftir lausn hins opinbera þegar þeir sjá að forysta BHM er í flokkspólitískum hráskinnsleik.

Ég vona innilega að hjúkrunarfræðingar sjái að sér og fresti verkfalli sínu í stöðunni sem er í hnút.


mbl.is Undrast orð forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að standa við stóru orðin

Það er mikil framför hjá Degi borgarstjóra að huga að því að standa við stóru orðin.

Að byrja smátt eins og fyrirsögnin ber með sér er í áttina. Vonandi kemur allt hitt á eftir.

 


mbl.is Ætlar að standa við stóru orðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óstöðugt

Þegar mbl.is segir í fyrirsögn: ´´Óstöðugur stöðugleiki Kaupþings´´ eiga þeir kannski við að gengi hlutbréfa Kaupþings afi verið óstöðugt.


mbl.is Óstöðugur stöðugleiki Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægt að viðurkenna ósigur

Sigmar Guðmundsson er maður að meiri, að viðurkenna ósigur sinn frammi fyrir alþjóð.

Margir sem þekkja til þessa skæða sjúkdóms hafa haft á orði að hann væri að þjaka sjónvarpsmanninn.

Vonandi nær hann bata, en það er líka vinna.


mbl.is Sigmar í meðferð á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur staðið allt of lengi - mál er að linni

Furðustjórnin á Strætó bs. hefur staðið allt of lengi. Allt frá því að stóra leiðarkerfisbreytingin var gerð, þar sem áratugareynsla reyndra starfsmanna var varpað fyrir róða, eldri borgarar voru sniðgengnir, þáverandi stjórnarformaður  sagði þá að gamla fólkið væri bara 4-5% af viðskiptavinunum og ekki væri hægt að eltast við svo lítinn hóp.

Einkum tveir forráðamenn fyrirtækisins beittu starfsmenn miklu harðræði, sýndu þeim lítilsvirðingu, hroka og virtu oft á tíðum reynslu þeirra og réttindi að vettugi. Reyndar hefur öðrum þeirra verið sagt upp.

Einkenni stjórnunarstílsins var að lítillækka reynda starfsmenn, á margan hátt, m.a. með tilfæringu í starfi þar sem áratuga starfsreynsla var ekki nýtt.

Ég vona svo sannarlega að nýr forstjóri taki upp aðra og mannlegri starfshætti.


mbl.is Skilningsleysi á þörfum notenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmaður gengur of langt

Vonandi sér þingmaðurinn Birgitta Jónsdóttir að sér og biður Skagfirðinga afsökunar á tilmælum sínum.

Það mætti ætla að hún hafi ofmetnast af góðu gengi flokks síns í skoðanakönnunum.

Ummælin eru hrikaleg.


mbl.is Segir Skagafjörð „Sikiley Íslands“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danmerkur

Nefnifall Danmörk

Þolfall Danmörku

Þágufall Danmörku

Eignarfall Danmerkur


mbl.is Ístak Ísland selt til Danmerkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimóttaskapur

Mér finnst fallegt af menntageiranum að senda kærleika og fallega hugsun á Feneyjartvíæringinn.

Reyndar finnst mér fólk fara verulega framúr sér, þegar það segist ekki skilja hversvegna borgaryfirvöld Í Feneyjum telja að gjörningurinn geti valdið óróa meðal ólíkra trúarhópa.

Ég held að aðstandandi sýningarinnar Ambraham Agnarsson viti alveg að ögruninni.

Ef ekki, þá er þetta bara heimóttaskapur landa minna.


mbl.is Verður moskunni lokað?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíta á Hilton

Stórmennum er ekki sæmandi að hýrast í þröngum fangaklefum.

Hreiðar Már á bara að bjóðast til að leigja svítu á Hilton, og kosta fangaverði á vöktum.

Ekkert minna er sæmandi manni sem skerti lífskjör almennnings um 30% og dró orðspor þjóðar sinnar niður í svað alþjóðlegra fjárglæframanna.


mbl.is Neitað um flutninga í dómsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband