Hefur staðið allt of lengi - mál er að linni

Furðustjórnin á Strætó bs. hefur staðið allt of lengi. Allt frá því að stóra leiðarkerfisbreytingin var gerð, þar sem áratugareynsla reyndra starfsmanna var varpað fyrir róða, eldri borgarar voru sniðgengnir, þáverandi stjórnarformaður  sagði þá að gamla fólkið væri bara 4-5% af viðskiptavinunum og ekki væri hægt að eltast við svo lítinn hóp.

Einkum tveir forráðamenn fyrirtækisins beittu starfsmenn miklu harðræði, sýndu þeim lítilsvirðingu, hroka og virtu oft á tíðum reynslu þeirra og réttindi að vettugi. Reyndar hefur öðrum þeirra verið sagt upp.

Einkenni stjórnunarstílsins var að lítillækka reynda starfsmenn, á margan hátt, m.a. með tilfæringu í starfi þar sem áratuga starfsreynsla var ekki nýtt.

Ég vona svo sannarlega að nýr forstjóri taki upp aðra og mannlegri starfshætti.


mbl.is Skilningsleysi á þörfum notenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Sé svo Heimir, þá tek ég undir með þér af heilum hug!

Jónas Ómar Snorrason, 18.5.2015 kl. 20:13

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já Heimir ég er sammála, og þessi hroki og lítilsvirðing er til háborinnar skammar. Minnir mig á orð Björn Blöndals í sjónvarpsþætti kvöldið fyrir síðustu borgastjórnarkosningar þar sem hann lét það út úr sér að þeir hefðu nú alveg svo sem getað hent upp einni GETTÓ-blokk eða svo...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 18.5.2015 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband