Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Krabbamein og viðbrögð sem komu á óvart.

Að greinast með krabbamein er reynsla sem ég hefði viljað vera án. En mitt var ekki valið og krabbamein í lunga var staðreynd. Það tók nokkuð langan tíma að greina þetta svo ekki yrði um villst og reyndi það á þolinmæðina. Þannig var að frænka mín, eldri kona lést af krabbameini um líkt leyti og var ég meðal annarra sem var skráður náinn ættingi hennar.
Krabbameinið hjá mér var fjarlægt ásamt hluta af lunganu 2. febrúar 2005 og naut ég frábærrar umönnunar á Landsspítalanum þar til ég fór á Rauða Kross hótelið við Rauðarárstíg þar sem ég bý annars einn.Þar var gott að vera og starfsfólkið ekki síður elskulegt en á Landsspítalanum. Áður en ég var útskrifaður af Landsspítalanum spurði ég hvort um einhverja endurhæfingu gæti verið að ræða, t.d. á Reykjalundi eins og eftir hjartauppskurðinn 1991. Læknirinn sem skar úr mér meinið og stóran hluta lungans hvað svo ekki vera. Líður og bíður og ég fer heim af Rauða Kross hótelinu, geng reglulega til að þjálfa litla lungað mitt og tek ágætum framförum. Fæ ég þá bréf frá Krabbameinsfélaginu og verð hálf klökkur yfir því að þessar elskur ætli nú að bjóða mér í hóp eða álíka að skiptast á skoðunum um reynsluna og stappa í okkur stálinu eftir þessa óumbeðnu reynslu. Opnaði því bréfið eftir að ég renndi kaffi í bollann.
Mikið varð ég hissa og hrærður yfir umhyggjunni sem elskurnar á Krabbameinsfélaginu sýndu mér.
Í bréfinu stóð eitthvað á þessa leið: Við samhryggjumst þér innilega vegna fráfalls .......... frænku þinnar og viljum með bréfi þessu bjóða þér að koma á fundi með öðrum aðstandendum sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls ættingja sinna.
Svo mörg voru þau orð. Ég sem hélt að nú ætti að bjóða mér stuðning vegna míns krabbameins.
Eitt það skemmtilegasta við lífið er, að sífellt er verið að koma okkur á óvart.

Skyldi Björgólfur vita af þessu?

Ég fór í hraðbanka Landsbanka á Hlemmi í gær og hugðist taka 5.000 krónur út. Ekki vildi betur til en svo að hraðbankinn hans Björgólfs skilaði ekki peningunum. Nú er það svo að Björgólfur veit að ég skipti ekki við Landsbankann af vissum ástæðum. Samt hvarflar ekki að mér að hann sé á þennan hátt að refsa mér. Þremur mínútum síðar reyndi ég aftur og þá tókst það, með semingi þó, að rétta mér fimm þúsund kallinn.
Ég fór áðan í Glitni og bað um aðstoð því Björgólfur er upptekinn við viðameiri störf og elskulegar stúlkurnar í Glitni á Eiðistorgi fullvissuðu mig um það að þetta yrði lagfært á allra næstu dögum.
Á meðan nýt ég þess í botn að lána Björgólfi Guðmundssyni og fjármálaveldi hans fimm þúsund krónur og það vaxta- og eftirmála laust, svo framarlega sem hann stendur í skilum.

Guðmundur barnaði Britney Spears.

Það má heita öruggt að Guðmundur Jónsson í Byrginu barnaði Britney Spears. Ég tala nú ekki um ef hannneitar sök og þrætir eins og dópsali.
Mikil er sök Magnúsar Stefánssonar og Einars Odds Kristjánssonar sem auðvitað bera höfuðsök í málinu eðli þess samkvæmt.
Mál er að linni og einhver segi af sér svo Þorranum verði bjargað.
mbl.is Er Britney ólétt í þriðja sinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru fleiri fyrirtæki með svona góða starfsmannastefnu


Ég afritaði þetta af vef Strætós bs.:

"Starfsmannastefna Strætó bs

Markmið

Að fyrirtækið hafi í þjónustu sinni starfsmenn með vilja, hæfileika, menntun og reynslu sem best er til þess fallin að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavinanna.

Að starsmannahópurinn sé samstilltur, jákvæður og vinni að því í sameingu að þjóna viðskiptavinum sínum samkvæmt stefnu fyrirtækisins.

Leiðir

Styrkja skal samvinnu og góðan starfsanda meðal allra starfsmanna Strætó bs.

Lögð er áhersla á að tryggja starfsmönnum góða vinnuaðstöðu og veita þeim möguleika á að auka hæfni sína með þjálfun og námskeiðum.

Í nýráðningum er lögð áhersla á að laða að hæfa starfsmenn, konur jafnt sem karla

Til séu skriflegar upplýsingar fyrir hverja deild sem skilgreina hlutverk og marmið hennar ásamt leiðbeiningum um leiðir til að ná settum markmiðum. Í starfslýsingum eru einstök störf, markmið þeirra og helstu verkefni skilgreind.

Fyrirtækið vill stuðla að styrku og sameinuðu félagsstarfi starfsmanna".


Pössun.

Um helgina fæ ég að gera það sem mér þykir skemmtilegast; passa barnabörnin. Daníel Már er 10 ára, verður 11 í janúar og Erla Rós er 4ra og verður 5 í nóvember. Við Erla Rós ræðum gjarnan um dúkkurnar Öbbu og Stellu og leikskólann Lyngheima sem hún er nýbyrjuð á en hún var áður á Klettaborg. Þó má segja að aðalumræðuefni okkar séu páfagaukarnir mínir þau Ólöf Jóna og Agnar. Henni þykir að vísu Ólöf Jóna nokkuð aðgangshörð því hún nartar stundum í eyrað á Daníel Má, en Agnar sem ekki er eins hændur að okkur "er svo sætur" eins og Erla Rós segir. Okkur stendur nefnilega engin ógn af honum. Við Daníel Már ræðum heldur meiri "alvöru" málefni, svo sem fótbolta hvort sem er innlendan eða erlendan. Af innlendum knattspyrnuvettvangi þykir okkur mest koma til KR og Fjölnis. KR vegna þess að þeir eru og munu alltaf vera bestir og Fjölnir vegna þess að þau búa í Grafarvogi og þá kemur ekkert annað til greina en Fjölnir. Ég er svo heppinn að fá að sjá leiki með 7. flokki og frá í fyrra 6. flokki. Síðast fóru þeir á Fram-völlinn og unnu þar alla sína leiki. Góður árangur það. Verð að láta af bloggi að sinni því ég þarf að fara að undirbúa mig fyrir pössunina. P.s. Við erum sammála um að Barcelona sé heppið að hafa krækt í Eið Smára.

Trúnaðarmaður tjáir sig.

Mér hefur borist beiðni um að birta undir mínu nafni eftirfarandi innlegg mitt í umræður um trúnaðarmenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar hjá Strætó bs.
Mér finnst reyndar lítt við hæfi að vera að karpa á þessum vettvangi, en hér er að okkur vegið sem og á "alvaran.com" og því ber að svara.
Ég vel Mbl-bloggið vegna þess að hér sparar fólk frekar stóryrðin en á "alvaran.com".
Það er engu líkara en samstarfsmenn okkar telji sig geta atyrt okkur eins og "almenningseignina stjórnmálamenn".
Það er ákaflega misráðið af okkar samstarfsfólki að vera sífellt að agnúast út í okkur í ræðu og riti, því að allt of mikið af okkar orku fer í að verjast vígfimu fólki sem ætti frekar að verja kröftum sínum í að styðja okkur í starfi.
"Mér hefur sýnst á skrifum þínum og gj á alvaran.com, að þið vitið ansi lítið um hvað trúnaðarmenn fást við dags daglega.
Þið látið gamminn geysa, vaðið úr einu í annað og margt sem miður fer er skrifað á trúnaðarmenn. Einkum á þetta við um gj. Hann sakar trúnaðarmenn um að vera einungis að skara eld að eigin köku og þeir fái bestu vaktirnar o.s.frv.
Í raun er svona bull ekki svaravert. Það er ekki verið að hafa fyrir því að spyrja okkur trúnaðarmennina. Ekki ein spurning. Ég til að mynda hef ekki unnið yfirvinnu síðan ég tók þetta vanþakkláta starf að mér. Það þýðir að tekjuskerðing mín er 40-50 þúsund á mánuði. Margfaldið það með tólf og sjáið hvað þa kostar okkur að annast þessi störf árlega. Ég hef haft lægri laun undanfarna mánuði, en ég hafði á sama tíma fyrir ári, þrátt fyrir 20% launahækkun.
GJ hefur vegið mjög að æru okkar trúnaðarmanna með skrifum sínum og verður það honum ævarandi minnisvarði.
Fyrst ég er byrjaður að tjá mig um starfsmannamál Strætó bs. má ég til með að leiðrétta orð Ásgeirs Eiríkssonar sem hann viðhafði að mig minnir Í Moggaviðtali.
Þar sagði hann að allir tólf trúnaðarmenn (Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar) hefðu samþykkt nýjasta vaktakerfið. Þetta er ekki rétt.
Við vorum á þessum fundi sex trúnaðarmenn og sex varatrúnaðarmenn. Ég andmælti kerfinu og hvernig staðið var að framlagningu þess og beindi orðum mínum til Ásgeirs, en hann þurfti ekki að hafa fyrir því að svara mér því það gerðu þrír varatrúnaðarmenn, tvær konur og einn karl og sögðu mig rjúfa friðinn (og stæðu heilshugar MEÐ þessu nýjasta vaktakerfi Einars Kristjánssonar sem er það fjórða á einu ári!).

Ég er hræddur um BM og gj að þið þurfið að endurskoða afstöðu ykkar til trúnaðarmanna og reyna að treysta okkur í stað þess að reyna að vega okkur á torgum. Mig langar til að biðja ykkur að athuga það að 80-90% af trúnaðarmannsverkefnum okkar koma ekki fyrir ykkar sjónir og eru unnin í sjálfboðavinnu".


Allir að græða.

Ég hef frétt að mikil veisla hafi verið hjá Eyjamönnnum á Shellmótinu. Allir ætluðu að græða sem mest á gestunum því það er auðvitað engan veginn víst að þeir sjáist aftur svo það var um að gera að þéna sem mest á hverjum einum.

Jafnvel bakarinn fór á kostum og hækkaði verðið á brauði og bakkelsi, en sagði svo heimamönnum að þeir fengju afslátt svo þeir yrðu ekki fyrir óþægindum af gullæðinu.

Löggan smitaðist greinilega af ástandinu og hóf að sekta fólk fyrir smávægileg brot.

Ekki veit ég hvort slíkt háttalag ýtir undir fólk að koma aftur. Efast stórlega.


mbl.is 13 kærðir fyrir umferðalagabrot í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannleikanum verður hver sárreiðastur.

Las athyglivert viðtal Agnesar Bragadóttur við Jón Gerald Sullenberger í Mbl. í dag og hlakka  til að lesa framhaldið á morgun.

Agnes Bragadóttir hefur fyrir löngu aflað og áunnið sér virðingar með viðtölum sínum fyrir Morgunblaðið og án efa hefur hún kannað sannleiksgildi frásagna Jóns Geralds frá fleiri en einni hlið.

Smátt og smátt fjarar undan trúverðugleika Jóns Ásgeirs og Jóhannesar, þrátt fyrir kaup á fjölmiðlum og lögfræðingum til að ganga erinda sinna.

Nú er það litli maðurinn og sannleikurinn sem standa upp úr.


mbl.is Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

D eða 4ra flokka hræringur.

Valið er ákaflega skýrt. Annað hvort veljum við eins flokks stjórn undir öruggri forystu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar sem allir þekkja af góðu einu eða fjögurra flokka hræring undir stjórn hagsmunaráðs og máttlauss borgarstjóra sem enginn veit hver verður.
mbl.is 49% Reykvíkinga vilja Vilhjálm í sæti borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr R-listi ef ekki verður spyrnt við fótum.

 Það eina sem hefur gengið upp hjá R-listanum eru veisluhöldin. Svo vel hefur þeim tekist þar upp að Sverrir Hermannsson hefði verið fullsæmdur af og hver veit nema Margrét gæti reynst föðurbetrungur ef hún nær kjöri og kemst í veisluglauminn með  R-listafólkinu.

Gerir fólk sér grein fyrir að útivistarparadísin að Úlfljótsvatni er eitt nýjasta afrek R-listans í mannfyrirlitningu og klúðri?

Nýjustu skoðanakannanir benda til að nýr Rl-isti sé í burðarliðnum. Það er að segja ef ekki verður brugðist við í kjörklefunum á morgun. Ég get ekki ímyndað mér verra hlutskipti fyrir Reykvíkinga en þá endurtekningu á stjórnleysi sem ríkt hefur undangengin tólf ár með klúðri í skipulagsmálum, skuldasöfnun og almennri óstjórn.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 1033438

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband