Færsluflokkur: Bloggar
7.1.2008 | 09:24
Hamingjan á lögheimili á Íslandi.
Ég get ekki ímyndað mér hamingjusamari mann en til dæmis mig. Bý í vestanverðri höfuðborg hamingjunnar, á fjölskyldu sem getur ekki verið tillitssamari og tengt fólk sem eltist við, linnulítið, að auka á hamingju mína.
Getur nokkur lifandi vera hugsað sér betri tilvist?
Hamingja á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2008 | 16:13
Hvað varð um þegjandi samkomulag?
Ég stóð í þeirrri trú að þegjandi samkomulag væri á milli okkar Magnúsar að útbásúna ekki fjárhagslega stöðu okkar. Nú virðist mér Magnús ekki ætla að standa við sinn hluta samkomulagsins og því ekki að vita hvað ég geri.
Ég tel mig þó frjálsan að þessu samkomulagi sem óvíst er að hafi verið gert með vitund beggja .
Magnús Scheving meðal ríkustu manna heims? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2008 | 20:37
Þakka hlý orð.
Hlýjar móttökur í köldu landi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.1.2008 | 20:14
Nær að bjarga okkur frá þessum forljótu húsum og Degi.
Hnignun Laugavegarins má að hluta til rekja til þessara forljótu húsa sem standa þar beggja vegna götunnar. Einhver þau alljótustu eiga nú að fá sess í Hljómskálagarðinum ef einhverntíma er eitthvað að marka Dag, sem ég reyndar vona að ekki sé ástæða til nú freka en endranær.
Mér finnst grafalvarlegt mál ef staðnaður borgarstjóri getur með einni skipun breytt áformum eigenda skriflanna með þessum hætti.
Nú vantar einhvern strangheiðarlegan mann til að kveikja í skúrunum.
Laugavegshúsunum bjargað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.1.2008 | 00:04
Hygg að erfitt verði að lækna hælbíta.
Við vorum einmitt að ræða þetta í kvöldverðarboði sem ég sat í kvöld. Ómaklegar árásir á Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra.
Það var líka tæpt á því að ekki væri að undra þótt hann léti af störfum á árinu sem er að ganga í garð (á þeirri stundu sem þetta er ritað við fagran söng um árið sem er að líða í aldanna skaut) .
Björn Bjarnason er ennþá fullur starfsþreks og orku og hefur etv. hug á að verja tíma sínum á skynsamari hátt en að svara öfundarmönnum og öðrum hælbítum.
Læknar ofarlega í huga Björns um áramót | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.12.2007 | 16:03
Bakkafullur lækurinn
Kópavogslækur flæðir yfir bakka sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2007 | 12:52
Svartnætti á forsíðu mbl.is 30. desember 2007.
Enginn tekur mark á mér
mikið heitt í hamsi er.
Uppgjör ársins framundan
alltaf var ég útundan.
Á nýju ári nálægt verð
næsta met að setja.
Við þunglyndisins þankagerð
þrautir ekki letja.
Þegar aðrir segja gleðilegt ár mun ég tuldra í barm mér: "hörmulegt ár".
Tilkynnt um foktjón | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 31.12.2007 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.12.2007 | 15:38
Ys og þys út af engu. Ungkratar lausir á límingunum.
Dómnefndin úrskurðaði Þorstein Davíðsson hæfan. Að mati setts dómsmálaráðherra hentði hann best til starfsins.
Ofur einfalt.
Í viðeigandi lagagrein segir: " Dómnefnd skv. 3. mgr. skal láta dómsmálaráðherra í té skriflega og rökstudda umsögn um umsækjendur um embætti héraðsdómara." Svo mörg eru þau orð.
Ekki stafkrókur um að dómnefndin skuli ráða í embættið.
Vilja mótmæla pólitískri spillingu við embættisveitingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2007 | 12:26
Trúnaðarmenn hjá Strætó.
Ég rakst á eftirfarandi á heimasíðu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar:
"9. DEILD
Aðal 9. deild Ómar Bjarni Þorsteinsson Ferðaþjónusta fatlaðra
Vara 9. deild Sigurbjörn Frímann Halldórsson Strætó BS
Vara 9. deild Úlfur Einarsson Strætó BS".
Bloggar | Breytt 28.12.2007 kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.12.2007 | 15:05
Gælur, fælur og þvælur.
Það er langt síðan ég hef hlegið eins dátt og í gær.
Ég var kominn upp í rúm með nýja bók og vænti góðs en svo góðs gat ég ekki ímyndað mér.
Frá fyrsta ljóði til þess síðasta var hrein og ósvikin skemmtun og ekki síður myndirnar sem skreyta bókina, unun á að líta.
Þau systkinin Þórarinn og Sigrún Eldjárn hafa skapað listaverk sem mun ylja og gleðja um ókomin ár.
Bókin er ætluð börnum. Ég vil alltaf vera barn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Úr hugskoti Heimis
Bloggvinir
- malacai
- gelgjan
- aronb
- skagstrendingur
- agustolafur
- solisasta
- baldher
- emmgje
- bergruniris
- skinogskurir
- bjarnihardar
- gattin
- tilfinningar
- greindur
- ekg
- einarsmaeli
- evabenz
- eyglohardar
- eythora
- ea
- feministi
- arnaeinars
- g-bergendahl
- gudni-is
- lucas
- gudmunduroli
- zeriaph
- boggi
- gotusmidjan
- doritaxi
- hallurg
- smali
- heidistrand
- heidathord
- heimssyn
- diva73
- helgimar
- himmalingur
- kliddi
- haddih
- hordurj
- ingabesta
- ithrottir
- jakobk
- jonaa
- jbv
- joninaottesen
- jon-o-vilhjalmsson
- jonsnae
- jorunn
- juliusbearsson
- katagunn
- katrinsnaeholm
- kolbrunb
- ksh
- kollaogjosep
- kristinn-karl
- kristjan9
- lady
- presleifur
- liljabolla
- vonin
- mariakr
- methusalem
- morgunbladid
- obv
- olinathorv
- omarbjarki
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- rannveigh
- redlion
- trandill
- puma
- runirokk
- rynir
- fullvalda
- hjolina
- heidarbaer
- holmarinn
- nr123minskodun
- sigurdursig
- siggith
- hvala
- stebbifr
- must
- steinunnolina
- svavaralfred
- unnar96
- valdimarjohannesson
- vefritid
- steinibriem
- thorsteinn
- thoragud
- thordisb
- thorolfursfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 1033129
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 54
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar