Hvar er skápurinn?

  • Stórt og mikið samfélag er í skápnum.
  • Sífellt koma fleiri út.
  • Þrengslin hljóta að vera mikil.
  • Fólk dettur óvart út.
  • Hringir þá í ömmu sína.
  • Hvurslags líf er í þessum skáp?
  • Veit einhver hvar skápurinn er?

mbl.is Anna kom óvart úr úr skápnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldís hefur rétt fyrir sér

Það er óhætt að taka undir orð Aldísar Hafateinssóttur að tækifæri til að auka breidd í yfirstjórn flokksins hafi ekki verið nýtt.

Það kom Kristjáni Þór vel að sunnlendingar tefldu fram tveimur hæfum einstaklingum.

Sjálfstæðisflokkur þarf að leggja við hlustir og taka afstöðu til fleiri viðhorfa en hingað til.

Þá mun vel farnast. 


mbl.is Nýttu ekki tækifæri til að breikka forystuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herbalife

Öruggt ráð til að létast á heilbrigðan hátt og jafnframt að auka þrek er að nota Herbalife vörur og tileinka sér nýjan lífsstíl.

Edda Borg lífsstílsráðgjafi getur leiðbeint þér og fylgt þér leiðina til betra lífs.

Farðu á ja.is eða á Facebook og leitaðu að henni.

Vegni þér vel:) 


mbl.is 168 kíló og þráir að léttast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið að gera á Mogga

Maður getur ímyndað sér að mikill sparnaður hjá Morgunblaðinu komi fram í mjög auknu álagi á starfsmenn.

Vinkona mín í Svíþjóð sagði mér áðan að hún gæti ekki lesið blaðið í dag á netinu, því laugardagsblaðið kemur alltaf upp.

Má vera að tæknileg bilun hrjái Moggamenn.

Við sem höfum lesið Mogga í sextíu ár erum miður okkar ef sambandið rofnar. 


Léttýðgi

Undanfarin misseri hefur umræðan um stjórnarskrá lýðveldisins einkennst af skrumi og léttúð.

 

  • Tími er því tilkominn að tala um málið af festu og alvöru.
  • Fólkið sem einhliða var skipað til að gera tillögur að nýrri stjórnar var og er svo upptekið af sjálfu sér að það sér ekkert í kringum sig.
  • Sumt þeirra telur sig eiga erindi á Alþing.
  • Einn telur sig vera besta biskupsefni landsins.
  • Við skulum muna að þetta fólk var ekki valið samkvæmt reglum lýðræðisins og
  • Við státum okkur af elsta þingi í heimi.

 


mbl.is Stjórnarskrármálið í tímaþröng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf veit Mogginn best

Chaelo Yoovidhya, auðmannsins er minnst í Thailenskum fjölmiðlum og ótrúllegur feril hans er rakinn.

Í fjölmiðlum hér er hann sagður þriðji ríkasti maður landsins en það hlýtur að vera misskilningur. Mogginn segir hann hafa verið ríkasta mann Tælands og það stendur. 


mbl.is Stofnandi Red Bull látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin þarf öfluga forystu

Vonandi hreinsar Landsdómsmálið Sjálfstæðisflokkinn af efasemdum um heilindi manna sem honum stjórna. Þá snúast vopnin heldur betur í höndum Jóhönnu og Steingríms formanna vinstri helstefnuflokkanna.

Sterkur Sjálfstæðisflokkur er þjóðinni nauðsynlegur. 


mbl.is Sjálfstæðismenn byrjaðir í baráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítilmennska hjóna

Jón Baldvin verður að sætta sig við að sitja uppi með skömmina.

Aðför þeirra hjóna að blaðamanninum sem kom ósómanum á framfæri er lítilmannleg. 


mbl.is Braut allar helstu grundvallarreglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betur ógert

  • Bryndís, þú átt alla samúð mína, en betur hefði verið að sleppa þessum skrifum, þau kalla bara á svar og etv. frekari upplýsingar.
  • Málið í heild er sorglegt.
  • Öllum getur orðið á.
  • Sendiboðinn er ekki sekur heldur sá er upphafinu veldur.

mbl.is Mannfyrirlitning í skrifum Þóru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna og garmurinn Grímur

  • Heldur Jóhanna virkilega að heiðarlegt fólk fáit til samstarfs við hana og garminn Grím?
  • Mikil er óskhyggja hennar.

mbl.is Vill þjóðarsátt um gjaldmiðil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband