21.9.2007 | 19:03
Eru lögreglumenn með meirapróf?
Mig hefur lengi langað að vita hvort allir löggæslumenn megi aka bílum þeirra eða bara þeir sem eru með meirapróf.
Lögreglumenn hafa oft verið spurðir að þessu, þar sem þeir takast oft á hendur vandasaman akstur og eru líka gjarnan með farþega (farneydda) í bílum sínum, en alltaf er svarað út og suður og gjarnan er sagt: "þeir hafa nægjanleg réttindi til að aka þessum bifreiðum", sem er auðvitað ekki svar við spurningunni.
Þess vegna spyr ég: eru bifreiðastjórar lögrelunnar með meirapróf?
Lögreglumenn hafa oft verið spurðir að þessu, þar sem þeir takast oft á hendur vandasaman akstur og eru líka gjarnan með farþega (farneydda) í bílum sínum, en alltaf er svarað út og suður og gjarnan er sagt: "þeir hafa nægjanleg réttindi til að aka þessum bifreiðum", sem er auðvitað ekki svar við spurningunni.
Þess vegna spyr ég: eru bifreiðastjórar lögrelunnar með meirapróf?
Umferðarslys á mótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:06 | Facebook
Um bloggið
Úr hugskoti Heimis
Bloggvinir
- malacai
- gelgjan
- aronb
- skagstrendingur
- agustolafur
- solisasta
- baldher
- emmgje
- bergruniris
- skinogskurir
- bjarnihardar
- gattin
- tilfinningar
- greindur
- ekg
- einarsmaeli
- evabenz
- eyglohardar
- eythora
- ea
- feministi
- arnaeinars
- g-bergendahl
- gudni-is
- lucas
- gudmunduroli
- zeriaph
- boggi
- gotusmidjan
- doritaxi
- hallurg
- smali
- heidistrand
- heidathord
- heimssyn
- diva73
- helgimar
- himmalingur
- kliddi
- haddih
- hordurj
- ingabesta
- ithrottir
- jakobk
- jonaa
- jbv
- joninaottesen
- jon-o-vilhjalmsson
- jonsnae
- jorunn
- juliusbearsson
- katagunn
- katrinsnaeholm
- kolbrunb
- ksh
- kollaogjosep
- kristinn-karl
- kristjan9
- lady
- presleifur
- liljabolla
- vonin
- mariakr
- methusalem
- morgunbladid
- obv
- olinathorv
- omarbjarki
- perlaoghvolparnir
- ragnar73
- rannveigh
- redlion
- trandill
- puma
- runirokk
- rynir
- fullvalda
- hjolina
- heidarbaer
- holmarinn
- nr123minskodun
- sigurdursig
- siggith
- hvala
- stebbifr
- must
- steinunnolina
- svavaralfred
- unnar96
- valdimarjohannesson
- vefritid
- steinibriem
- thorsteinn
- thoragud
- thordisb
- thorolfursfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þarf aukin ökuréttindi (meirapróf) til aksturs á lögreglubílum? Hvar er slíkt að finna í lögum eða reglugerðum?
Hlynur (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 19:24
Ég spyr.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 21.9.2007 kl. 19:31
Ég get upplýst um þetta. Það er ekki krafist aukinna ökuréttinda til að mega aka lögreglubifreið í neyðarakstri né öðrum akstri. Þetta er raunar nokkuð sérstakt því að akstur lögreglubifreiðar, og sérstaklega neyðarakstur hennar, er sérstaklega vandasamur og stjórnandinn þarf að hyggja að mörgu meðan hann sinnir akstrinum. Ökumenn annarra neyðarakstursbifreiða, svo sem slökkvibifreiða og sjúkrabifreiðar, þurfa að hafa meirapróf þ.e. aukin ökuréttindi.
Rétt er að taka af allan vafa um að þótt kveikt sé á bláum viðvörunarljósum lögreglubifreiða, og sírena hennar látin hljóma samtímis þá leysir það ökumann lögreglubifreiðarinnar ekki undan varúðarskyldum. Lögreglubifreið, sem þannig er ekið gegn rauðu ljósi og lendir í árekstri við bifreið á grænu ljósi, teldist því alla jafna í órétti hvað varðar tjónsuppgjör og bætur. Heimild lögreglunnar til að brjóta gegn ákvæðum umferðarlaga telst því ekki heimild til að brjóta reglurnar þannig að aðrir vegfarendur verði settir í hættu.
Hreiðar Eiríksson, 21.9.2007 kl. 19:38
Þakka þér kærlega Hreiðar. Þetta skýrir loðnu svör Geirs Jóns og fleiri löggæslumanna.
Ég ek strætó og horfi nær daglega á brot lögreglumanna á umferðarlögunum og með hreint ótrúlegum hætti stundum.
Þegar lögreglan verður til fyrirmyndar í umferðinni, vaknar fyrst von til að umferðarmenning komist á líkt og hjá siðmenntaðri og agaðri þjóðum. Þangað til keyrum við eins og vanþróaðir ökumenn gera.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 21.9.2007 kl. 19:59
Neibbs,, eins og Hreiðar segir hér að ofan þá þarf ekki meirapróf til að aka lögreglubifreiðum. Hvorki í neyðarakstri né í venjulegum akstri. Ekki nema hugsanlega einhverjum örfáum lögreglubifreiðum sem eru þyngri en 3500 kg. að leyfðri heildarþyng, það gætu hugsanlega einhverjir VAN bílar lögreglunar verið yfir þeim mörkum. Þeir sem öðluðust bílpróf árið 1993 eða síðar hafa einungis ökuréttindi á bíla sem eru 3500 kg að leyfðri heildarþyngd. Þeir sem eru með eldra bílpróf en það hafa réttindi á mikið stærri bíla.
gudni.is, 24.9.2007 kl. 01:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.