Strætisvagnar í fljúgandi hálku í kvöld.

Ég var að keyra strætó í tæpa níu klukkustundir í dag og til miðnættis. Ekki í frásögur færandi nema vegna éljagangsins í kvöld.
Vélamiðstöðin á að bregðast strax við og salta og eða ryðja göturnar svo ekki þurfi nagladekkjanna við. Samkvæmt samningi að því að mér skilst eiga þeir að byrja á strætisvagnaleiðum. Vagnarnir eru þannig skóaðir að þeir eiga að valda sem minnstri svifryksmengun.
Í kvöld brá svo við að við máttum aka tímunum saman án þess að saltað væri. Víða myndaðist hálka og það var ekki söltunargenginu að þakka að ekki hlutust slys af.
Okkur vagnstjórum er mikið í mun að valda ekki tjóni á lífi og limum þegar við ökum þessum stóru og þungu vögnum um götur borgarinnar. Það reynir á þegar hált er.
Í kvöld brugðust annars ágætir saltarar okkur illa og er nauðsynlegt að Vélamiðstöðin og Strætó bs. setjist saman yfir málin og finni út hvað aflaga fór.
Öðruvísi getum við ekki gert viðeigandi úrbætur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Andrés.si

Fyrir 15 árum benti ég á það punkt á Íslandi. Hríkalegt mokstur í vetrartímanum er  hér með meira en ólikindum.  Þá, sem sagt 15 ár siðan hefur fólk  sagt mér að ég er á móti Íslendingum. Sama sögðu þeir þegar ég hef talað um al ban á notkun  nagla dekkja.  Í dag Reykjavikur borg reyna að draga úr nagla dekkjum, en mokstur er sami og var fyrir 15 árum siðan. Sem sagt engin. 

Við sjám oft tölur í blöðum hvað kosta að salta götur  á dag. Hins vegar segja þeir aldrei hvað hefði kostað það í snjólausum árum, eða hvað mikið hefur verið að spara.  Alla vega ferðamenir herna taka vel eftyr þessu þar sem  heima hjá þeim er farið af stað mörgum tímum áður  en úti er frost.  Svo má ekki gleyma að ef óveður með snjór byrja á laugardaginn er það bara eins og hvers annað dag.  Hér á landi fara þeir á stað næsta vírkan dag virðist vera. Alla vega tók ég eftyr þessu í  105.

Andrés.si, 4.2.2007 kl. 00:56

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þið strætóbílstjórar hafið alla mína samúð við þessar aðstæðrur. Þið eruð hverstagshetjur!!

Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.2.2007 kl. 01:27

3 Smámynd: bara Maja...

Úff, á fullt í fangi með Yarisinn minn þegar hann dansar Rúmbu í hálku og snjó...Þú ert hetja í mínum huga.

bara Maja..., 4.2.2007 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband