Færsluflokkur: Menning og listir

"En halvgammel luder..."

Ekki átti ég von á því að Danir tækju upp á því að spyrna við fótum og rækta tungu sína. Benny Andersen lýsti því á áttunda áratug síðustu aldar í ljóði hversu lítt þeir væru meðvitaðir um afvegaleiðslu móðurmálsins. Mig minnir að upphafsorðin séu: "Vort modersmaal er hæsligt, det har saa fæl en klang......" Og síðar segir: En halv gammel luder með röd og svamped tud. Og hun er saa gæv og hun holder stadig ud......." Segir í textanum að tungan sé opin fyrir öllum utanaðkomandi áhrifum en: "Mest fra tysk og engelsk og fra den spanske kyst......" Nú ætla Danir sem sagt að snúa blaðinu við eða að minnsta kosti tveir flokkar á danska þinginu. "Lykke til".
mbl.is Danskan sýkt af ensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur Ragnar getur selt hugbúnaðinn.

Er ekki kominn góður og öruggur kaupandi að hugbúnaðinum sem Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi fjármálaráðherra keypti af bókaútgáfunni um árið.
Þá taldi Ólafur Ragnar þetta mjög góða fjárfestingu og greiddi fyrir með mínu fé og þínu.
Hefur nokkuð breyst í tölvuheiminum?
mbl.is Ólafur Ragnar tekur sæti í þróunarráði Indlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn á Löngusker.

Er þetta ekki hið besta mál? Ólafur Ragnar hættir þá afskiptum af störfum Alþingis og hlífir þjóðinni við afglöpum sínum.
Ég ítreka tillögu mína þess efnis að Ólafi Ragnari verði búinn bústaður á Lönguskerjum.
mbl.is Tillaga um að kosið verði um stjórnarskrárbreytingar í þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neðan beltis.


Ung og falleg kona var á leið heim úr verslunarferð í útlöndu. Hún spurði prestinn sem sat við hliðina á henni í vélinni hvort hann gæti mögulega gert sér greiða.
Að sjálfsögðu barnið mitt sagði klerkurinn, hvað get ég gert fyrir þig?
Sko, ég keypti rándýra hárþurrku í útlöndum og ég er hrædd um að ég verði stoppuð í tollinum sagði konan. Er nokkur leið að þú farir með hárblásarann í gegnum tollinn. Þú gætir til að mynda geymt hann undir hempunni.

Ég veil endilega aðstoða þig vina mín, en ég mun hins vegar ekki ljúga fyrir þig sagði presturinn.
Eftir að vélin var lent og þau komu að tollinum fór presturinn á undan. Tollvörðurinn stöðvaði prestinn og spurði hann hvort hann væri með eitthvað sem gera þyrfti grein fyrir.
Ég er ekki með neitt slíkt frá mitti og upp úr sagði presturinn
Hvað ertu með neðan beltis?spurði tollvörðurinn.
Þar er ég með magnað tæki sem er hannað til að gagnast konum, en er enn sem komið ónotað.


Góð grein krabbameinslæknis í Mbl.

Las í morgun góða grein Kjartans Magnússonar krabbameinslæknis í Mogga.
Kjartan og margir fleiri hafa tekið upp hanskann fyrir Grund og eru allir á einu máli um að för og vera blaðakonunnar í eina viku á dvalarheimilinu hafi ekki orðið nokkrum til framdráttar.
Mér finnst að eigendur Ísafoldar, þeir Baugsmenn skuldi þjóðinni afsökunarbeiðni, því ekki eru líkur á að höfuðið undir hattinum sjái sóma sinn í þeirri gjörð.

Frábær föstudagsþáttur.

Enn einum frábærum þætti með þeim félögum Sigurði G. Tómassyni og Guðmundi Ólafssyni var að ljúka. Sem endranær fóru þeir á kostum.
Það er leitun að sambærilegum þætti og held ég að hann fyrirfinnist ekki. Þeir sýna okkur hlustendum þá (sjálfsögðu) virðingu að koma vel undirbúnir til leiks hvort heldur er varðandi tónlist eða talað mál.
Guðmundur hefur ótrúlega hæfileika til að komast að kjarna hvers máls og mætti margur stjórnmálamaðurinn taka hann sér til fyrirmyndar.
Víðtæka þekkingu sína miðla þeir á þann hátt að unun er á að hlusta.
P.s.
Var að vona að þeir myndu fjalla um morðið á Lítvínenko sem lést í gærkvöld af völdum eiturs, en það kemur þá bara góð úttekt á málefnum þessa "einkavinar" Pútíns á föstudaginn kemur.
mbl.is Silvía Nótt klúður ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG og mávarnir.

Vg hefur haft tólf ár til að ræða málin um mávana og vill halda því áfram.

Mér finnst bara allt í lagi að VG ræði málin í þaula á meðan að Gísli Marteinn fer á skytterí.


mbl.is Yfirlýsing frá borgarstjórnarflokki VG í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur KR-ingar

Hægt og bítandi. Nóg þrek og úthald.  Sígandi lukka er best.
mbl.is KR vann Breiðablik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1033129

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband