Færsluflokkur: Dægurmál

Versta afgreiðslan á Kastrup hjá WOW - Skúli Mogensen er á rangri braut.

Ég hef bitra reynslu af hroka og ómerkilegheitum hjá starfsfólki WOW á Kaupmannahafnarflugvelli. Tjónið sem starfsfólkið bakaði mér var mikið. Eins hef ég persónulega verið vitni að hroka og dónaskap við innritunarborð WOW og virðist sem einkum börn og konur verði fyrir barðinu á kynsystrum sínum. Á fundi með starfsfólki þar sem reynt var að greina rétt og sagt frá framvindu mála, leyfði starfsfólk WOW sér að draga allt í efa og segja okkur segja ósatt frá. Þetta myndi ekki gerast nema vegna þess að farþegarnir hafa greitt  þjónustuna fyrirfram.

Skúli Mogensen er á rangri braut.


mbl.is Þrjú börn urðu eftir á Kastrup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þola samanburðinn illa

Stjórnendur borgarinnar, hvort heldur eru kjörnir eða ráðnir þola illa að vera bornir saman við stjórn annarra sveitarfélaga. Þá breyta þeir bara leikreglum. Píratar samþykkja.


mbl.is Óánægja starfsmanna sögð ástæðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Holur víða um borgina

Ég sá eina litla holu á Grensásvegi sunnan Miklubrautar á ferð minni um helgina. Hinsvegar sé ég daglega ótal holur neðst á Hverfisgötunni. Við Umferðarmiðstöðina eru hrikalegar holur. Allt of langt mál er að nefna allar holur í borginni :)

Erlendir ferðamenn spyrja gjarna hvort Reykjavíkurborg sé gjaldþrota.


mbl.is Djúpar holur við háskólann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gilda landslög ekki?

´´...nefnd á veg­um Sam­einuðu þjóðanna lýsti því yfir að hann sætti ólög­mætu varðhaldi.´´


mbl.is „Hve sætur hann er!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sí kvartandi

Starfsfólk Landspítalans kvartar í sífellu. Ef ekki er beint ástæða til, sér það fram á ókomna flensu og barmar sér í bak og fyrir. Þreytandi og lýjandi að fylgjast með barlómnum.


mbl.is Landspítalinn ofsetinn vegna álags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af Eyjunni


Heilbrigðiskerfið á Íslandi það 8. besta í Evrópu

landspitaliHeilbrigðiskerfið á Íslandi er það 8. besta í Evrópu, samkvæmt nýrri úttekt Health Consumer Powerhouse (HCP). Samkvæmt úttektinni er Ísland fyrir ofan Svíþjóð og Danmörku á listanum.

HCP birtir árlega lista yfir frammistöðu heilbrigðiskerfa, svokallaðan Euro Health Consumer Index, í 35 Evrópulöndum. Úttektin tekur til 48 þátta heilbrigðiskerfisins, svo sem réttindi sjúklinga, aðgang að umönnun, árangur meðferða, fjölbreytni þjónustu, forvarna og fleira. Gefin eru stig fyrir hvern þátt og geta löndin fengið einkunn á bilinu 0 til 1000.

Samkvæmt þessu er besta heilbrigðiskerfið í Hollandi sem skorar 916 stig af þúsund mögulegum. Þar á eftir koma Sviss (894), Noregur (854), Finnland (8745) og Belgía (836).

Neðst á listanum eru Svartfjallaland (484), Pólland (523) og Albanía (524).

Ísland er í áttunda sæti listans með 825 stig, mitt á milli Þýskalands (828) og Danmerku (793). Svíþjóð (786) er svo í 10. sæti listans. Ísland skorar hæst allra landa, ásamt Noregi og Hollandi, í flokknum árangur meðferða. Þrátt fyrir að skora sjö stigum hærra en í fyrra fellur Ísland um eitt sæti á listanum á milli ára.

Almennt hafa gæði heilbrigðiskerfa í Evrópu aukist á undanförnum árum þrátt fyrir áskoranir eins og fjármálakreppu og hærri lífaldur íbúa. Til að mynda var Frakkland á toppi listans árið 2006 með 768 stig. Sú einkunn hefði skilað 13. sæti á listanum í ár.


mbl.is Þurfa að hlusta á vilja fólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kári hrífur

Kári Stefánsson er mikill sölumaður. Hann leikur sér að því að fá tugi þúsunda til að kaupa hugmyndir sínar, hvort heldur ganga út á sjálfsagt mál eins og að bæta heilbrigðisþjónustuna sem hvort sem er er á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar eða að kaupa hlut í deCode og fórna aleigunni eins og svo margir gerðu. Svona hrífandi sölumenn eru sjaldgæfir.


mbl.is Forsætisráðherra „fýldur út í alla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarleg ásökun Kára

Skammdegið virðist ekki vera kjörtími fyrir Kára Stefánsson að mæta í viðtöl.

Ásökun hans í garð Vilhjálms er vítaverð.


mbl.is Sömdu Hagar frumvarpið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einleikur

Frosti Sigurjónsson er iðinn við að gagnrýna ráðherra samstarfsflokksins opinberlega. Færi ekki betur á að hann setti sína gagnrýni fram innan veggja stjórnarheimilisins frekar en að ala á sundurlyndi þegar brýnt er að stjórnarflokkarnir standi þétt saman?


mbl.is „Ávinningurinn langsóttur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.7.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 1033487

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband