Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Hver valdi liðið?

Okkur KR-ingum er mikið gleðiefni að eiga besta mann, fyrri umferðar Íslandsmóts karla í knattspyrnu, besta þjálfarann og besta stuðningsmannahópinn, fyrir utan það að eiga helming liðsins.

Eitt vefst fyrir mér sem ég hef hvorki getað lesið af mbl.is né pappírsmogganum sem ég kaupi, en það er hver velur liðið.

Það má vel vera að þetta sé svo sjálfgefið þeim sem til þekkja að ekki þurfi að geta þess, en okkur hinum væri akkur í að fá vitneskju um veljendur í blaði allra landsmanna.

Varla valdi knattspyrnuráð Vals við Hlíðarenda alla þessa KR-inga. 


mbl.is Guðmundur Reynir bestur í fyrri hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valsmenn verðugir

Við KR-ingar eigum að þakka Valsmönnum fyrir leiðbeiningar í mannasiðum og samskiptum íþróttafélaga. Valsmenn er landskunnir fyrir hógværð og tillitssemi þegar kemur að söfnun góðra manna í lið. Þeim tókst til dæmis að ná í lið fyrir yfirstandandi Íslandsmót með knattspyrnumönnum úr öðrum félögum.

Sem stuðningsmanni KR þykir mér vænt um alla andstæðinga félagsins, því án þeirra værum við ekki bestir.

Til hamingju með daginn Valsmenn. 


mbl.is Valsmenn hafna kvörtun KR-inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Sveinbjörn Strandberg

Blikar eru verðugir Íslandsmeistarar 2010. Þeir unnu KR og því er ekki spurning um hvert titillinn átti að fara.

Fimleikafélagið hefur fengið þennan titil á silfurfati undanfarin ár og ekki á þá heppni bætandi.

KR gerði þá skissu að skrifa um dómara á heimasíðu sinni og fengu hefnd starfsbræðra hans í kjölfarið. 


mbl.is Breiðablik er Íslandsmeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrasti dómari Íslandssögunnar

Nú hafa KR-ingar selt besta dómara íslenskrar knattspyrnu. Tvennt kemur til, KR fékk metverð fyrir Kristin annarsvegar og hinsvegar geta KR-ingar nú notið frábærrar dómgæslu þessa frábæra dómara. Samkomulag er á milli KR og KFK að gefa kaupverðið ekki upp, en það mun verða greitt á næstu 36 árum með jöfnum mánaðarlegum afborgunum, sem eiga að fara langt með að kosta þjálfun allra yngri flokka KR, karla sem kvenna í 36 ár.
mbl.is Kristinn hættur að dæma fyrir KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþolandi

Það er óþolandi að taka á móti fimleikafélögum úr Hafnarfirði á Meistaravöllum og vera mikið betri í alla staði, en lúta samt í gras. Endurtek: óþolandi.
mbl.is Enn einn sigur FH-inga í Frostaskjólinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erlendur dómari dæmdi ekki í kvöld

Dómarinn hefur mikið að segja í knattspyrnuleikjum. Í bikarúrslitaleiknum var Erlendur dómari og KR tapaði. Nú var allt annað upp á teningnum innlendur dómari dæmdi og KR vann.
mbl.is Sigurmark Kjartans gegn Fram í uppbótartíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 1033454

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband