Nú þarf almenningur að bregðast við til hjálpar manni með snoturt hjartalag

Það eru yfirmáta leiðinleg og í raun hörmuleg tíðindin af gengi Pálma Haraldssonar eiganda Fons og ótal annarra fyrirtækja. Hvert fyrirtækið af öðru tekur niðri og kemst ekki aftur á flot.Það hlýtur að vera sárt fyrir mann sem af elju, dugnaði og síðast en ekki síst heiðarleika í hvívetna að sjá á eftir lífsstarfi sínu fara á þennan hátt.

Pálmi Haraldsson er maðurinn sem ekkert hefur aumt mátt sjá á viðskiptaferli sínum án þess að reyna af fremsta megni að rétta hlut þeirra sem hafa átt í vök að verjast.

Það er von mín að alþýða manna sameinist um að hjálpa þessum vini minni máttar og aðstoða hann við að ná yfirburða stöðu í íslensku viðskiptalífi á ný ásamt með ástkærum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni.


mbl.is Fons í gjaldþrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Thank you! Thank you! Thank you! Ég las þennan pistil með sívaxandi ugg í hjarta. Hvað hefur eiginlega gerst? Svo las ég síðustu klausuna og létti mikið. Thank you!

Baldur Hermannsson, 1.5.2009 kl. 09:43

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hér er: "...mannlíf allt í blóma." segir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ og: " Lífskjör eru hér betri en víðast hvar á byggðu bóli, atvinnuleysi sáralítið".

Þökk sé Pálma Haraldssyni og Jóni Ásgeir að ógleymdum föður hans Jóhannesi.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 1.5.2009 kl. 10:55

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Er þetta kannski dagur öfugmælanna?

Vel á minnst, Pálmi - var hann ekki potturinn og pannan í grænmetissamsærinu? Það samsæri var ekkert annað en grímulaus hernaður gegn almenningi. Svoleiðis fólk á að meðhöndla sem þjóðaróvini.

Baldur Hermannsson, 1.5.2009 kl. 10:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband