Vanþróað í Grafarvogi.


Hvað er málið með fólk á vellinum?

Eftir að hafa dvalið um stund í Grafarvogsbrekku í gær þá hef ég komist að eftirfarandi niðurstöðum:

1)      Stórveldi er það félag sem sinnir þörfum stuðningsmanna sinna, tryggir öryggi þeirra og að þeim líði vel á vellinum.

2)      Stór hluti íslenskra barna er ofdekraður, orðljótur og hreinlega leiðinlegur.

3)      Ég hreint út sagt elska reykingabannið.

4)      Ég er of lítill.

Á KR-vellinum eru gæslumenn raunverulegir gæslumenn. Ekki er brugðið á það ráð að búa 10 ára strákum skærlitum vestum og kalla þá gæslumenn. Það er nefnilega sama hvað maður bölvar gæslunni á KR-vellinum á stundum það verður alltaf svo að þeir sinna verkefnum sínum með sóma. KR-ingar kaupa gæslu á völlinn til að tryggja það að öryggi áhorfenda sé sinnt á bestan mögulegan hátt. Ég veit ekki til hvaða viðbragða yrði gripið ef skyndilega kæmi upp neyðarástand á Fjölnisvelli, kynnu guttarnir í gulu vestunum rétt viðbrögð. Mér er það til efs. Þá höfðu strákarnir nákvæmlega enga stjórn á áhorfendum sem voru komnir inn að vellinum löngu áður en leik lauk og þustu inn á völl að honum loknum. Það var ekki eins og þeir reyndu að hafa stjórn á áhorfendum - þeir voru að horfa á leikinn. Það er ekki gæsla.

Þar sem ég stóð á vellinum (ég stóð reyndar á nokkrum stöðum vegna vandamála við lið 4) varð mér ljóst að stór hluti íslenskra barna er fáránlega dekraður, orðljótur og hreint út sagt hundleiðinlegur. Í rándýrum merkjaklæðnaði, sum hver með stíliseraðar tískuhárgreiðslur, allir með gsm síma og vasa fulla fjár. Síðan hlustar maður á þá öskra óyrðum, skítkasti og hótunum sín á milli. Nokkur reyndu að kasta flöstum inn á völlinn að leik loknum og í aðstoðardómara. Þetta greinarkorn á ekki að fjalla um barnauppeldi en ég segi bara að ég þakka guði fyrir að kreppa nálgast. Ég eigi von um rólegri tíma þegar þessir krakkar verða ekki með sykurpeninga í vasanum. Ég man þá tíð að þegar ég eða vinir mínir höguðum okkur illa þá fengum við skell á bossann. Mikið held ég að margir þessir krakka hefðu gott af vænum smelli á „le derriere.”

Það er bannað að reykja í KR-stúkunni og ég kann að meta það. Hvort reykingar séu heimilar eða ekki í stúkunni í Grafarvogi þá veit ég það eitt að fnykurinn og reykurinn í gær var mig lifandi að drepa. Sumarilmurinn frá KR-vellinum síðan á laugardag drapst í skítafnyki Fjölnisvallar. Ég kann að meta reykingabannið og því á að fylgja miskunnarlaust eftir - grasilm í stað tjörunnar.

Ég er lítill og íslenska þjóðin er hávaxin. Það fer illa saman þegar áhorfendaaðstaða er skammarleg eins og í gær.

Káramenn tjái ég mig ekki um enda hafa fæst orð minnsta ábyrgð. Ég vitna bara í meistara Sverri Stormsker - það er of seint að byrgja barinn þegar barnið er dottið í það.

 

Ofangreint er af krreykjavik.is og get ég tekið undir hvert orð. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Tapið var sárt!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 16.5.2008 kl. 21:25

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

á Fram KR?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 16.5.2008 kl. 21:40

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það er byrjendabragur á gestrisninni getum við sagt.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 17.5.2008 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband