Moggamenn - á tánum!

Ekki veit ég hver ber Moggann út hér á vestanverðri Ásvallagötu, en sá hinn sami þarf að taka sig á. Verulega.

Það er einfalt mál að setja blaðið inn um lúguna hjá mér t.d. eftir að búið er að setja 24 stundir inn.

Þá ætti ég ekki að þurfa að hringja tvisvar sinnum á afgreiðslu blaðsins til að bera fram kvörtun ein og var í dag og hefur því miður gerst oftar.

Vel að merkja þá leið á fjórðu klukkustund á milli hringinga.

Mogginn á á brattan að sækja með að koma sínu áskriftarblaði fyrir augu og buddu lesenda. Þess vegna þurfa allir liðsmenn Mogga að vera á tánum. Alltaf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Axel Hannesson

Ég held að flest, ef ekki öll, frétta (og slúður) blöð landsins eigi við sama vanda að stríða. Að sjálfsögðu ætlast maður til þess að fá þær upplýsingar og þjónustu sem greitt er fyrir, án vandkvæða eða tafa.

Hef einu sinni gerst áskrifandi að fréttablaði. Það var mjög auðvelt, nota bene. En að segja upp áskriftinni, það er efni í ágæta bók... Því held ég mig að mestu við vefmiðlana núorðið, en gríp vissulega í prentritin þegar þau bjóðast af handahófi á borðum manna. Held að ég missi ekki af neinu merkilegu þegar upp er staðið. 

Sigurður Axel Hannesson, 10.5.2008 kl. 23:35

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Það má vel vera rétt Sigurður að vefmiðlarnir séu nothæfir. Ég var rétt í þessu að renna yfir Moggann í tölvunni því blaðið er ekki komið. Samt bíð ég spenntur eftir að fá blaðið í hendur.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 11.5.2008 kl. 10:27

3 Smámynd: Sigurður Axel Hannesson

Skiljanlega, enda ómögulegt að afneita pappírsástinni.

Sigurður Axel Hannesson, 11.5.2008 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband