Skaðsemi svifryks fyrir lungun?

Væri ekki ráð að Morgunblaðið birti okkur lesendum sínum upplýsingar um skaðsemi svifryksins á heilsu borgarbúa. Það má ætla að við séum í mismikilli hættu, eftir búsetu, hvort við erum heimavið, fjarri eða í nánd við mengunina, hvaða störfum við gegnum, t.a.m. hvort við sitjum á kontór í Orkuveituhúsinu á efstu hæð eða höfum atvinnu af að aka um helstu mengunargötur borgarinnar.
Þá má ætla að við séum misvel í stakk búin hvað varðar heilbrigði lungna.
Mér þætti fróðlegt að fá upplýsingar um þetta á næstunni því senn fer mesti svifryksmengunartíminn í hönd,
mbl.is Upplýsingar um svifryk í Reykjavík á mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Morten Lange

Tek undir þessu hjá þér.  Skýrsla frá Evrópusambandinu "Cycling the way a head for towns and cities"  ( Google finnur þetta) benti á rannsóknir sem sýndu að þeir sem sitja í bíl verða fyrir meiri mengun af völdum umferðar en þeir sem hjóla eða ganga eftir sömu götum.  Þar að auki bætir samgöngumátan heilsu þeirra ( sem ganga og sérstaklega þeirra sem hjóla) svo um munar.  Þeir sem hjóla til samgangna spara samfélaginu um 300.000 árlega, að miklu leyti vegna bættrar heilsu ( Sælensminde 2002)

Nú þarf líka að minnast á þótt það ætti að vera óþarfi , að mengunin úr púströrum sé að öllum líkindum mun verri en malbiksrykið. Sérstaklega er sótið úr dísilvélum slæmt, og enn verra úr illa stilltum vélum.  Þess vegna komu fram tilögur í skýrslu samgöngu- og umhverfisráðuneytis í vor :

Mótvægisaðgerðir gegn svifryki

um að krefjast sótsíur á ökutæki og skattleggja miðað við sótmengun. 

Mér er það hulin ráðgáta af hverju Reykjavíkurborg ekki minnast á þessum punktum  í sínum herferð gegn svifryki.

Morten Lange, 8.11.2007 kl. 18:06

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þakka gott innlegg Morten. Það er að því er virðist hálfgert feimnismál að taka afleiðingar mengunarinnar á dagskrá. Hvað veldur?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 8.11.2007 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband