Sveinn Benediktsson síldarspekúlant.

Sveinn Benediktsson síldarsaltandi var fyrirferðarmikill maður á velli a.m.k.
Hann ferðaðist með Esjunni síldarsumarið 1960 milli Siglufjarðar og Raufarhafnar einu sinni sem oftar.
Það var siður þá að skipstjóri og fyrsti vélstjóri buðu þekktum þjóðfélagsþegnum að sitja með þeim til borðs í hádegi og að kvöldi á fyrsta farrými.
Alltaf var fjór- og fimm réttað og ég 14 ára guttinn þjónaði til borðs.
Aftast í salnum stjórnborðsmegin var borð Bergsteins Bergsteinssonar 1. meistara og þar sat Sveinn Benediktsson ásamt fríðu föruneyti til borðs með Bergsteini.
Ég heyrði á tal þeirra er ég skammtaði vínarsnitzeli á diskana er Bergsteinn sagði:
"Getur þú ekki Sveinn minn gaukað að mér svo sem einu kvarteli?"
" Ég hef nú sjaldan verið spar á ölmusuna Bergsteinn minn" svaraði Sveinn þá við vandræðalega þögn spyrjandans.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband