Kjarni málsins!

Á hvaða leið er Alþingi Íslendinga?

Spurð hvort það sé eðli­legt að sam­skipti þing­manna í mill­um sé dreift til fjöl­miðla þó svo að tölvu­póst­ur sé stílaður á þing­menn sem eiga ekki sæti í til­tek­inni nefnd, seg­ir Hall­dóra það eng­an veg­in eðli­legt. „Það finnst mér ekki heppi­legt og mér finnst það bara mjög leiðin­legt að það sé gert.

Mér finnst líka leiðin­legt að strax sé hoppað á það að ásaka mig. Ég græði ekk­ert á því að leka þess­um pósti, þetta er bara til þess að af­vega­leiða ann­ars mjög mik­il­væga umræðu.“


mbl.is Ásmundur svaraði öllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Af hverju skyldi Ásmundur ekki hafa svarað öllum sem voru "settir-inní-málið"?  Það hefði ég líka gert í hans sporum... 

Kolbrún Hilmars, 1.5.2018 kl. 13:36

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta var þá eftir allt saman ekki "mígleki" heldur venjuleg hringvöðvaræpa. Ásmundi er þó vorkunn enda ekki sá fyrsti til að gera mistök við sendingu tölvupósta. Þar sem hann á víst mjög tíðar ferðir um kjördæmið sitt hlýtur hann í þeirri næstu að geta staldrað við á Bókakaffinu á Selfossi og fengið ráðleggingar um það sem ber helst að varast í þeim efnum.

Gleðilegan baráttudag verkalýðsins.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.5.2018 kl. 14:13

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Gleðilegan baráttudag til þín líka, Guðmundur.  Ertu hér að segja að tölvupóstmistök fyrrverandi þingmanns (sem sagði reyndar af sér í kjölfarið) séu sambærileg við þau formanns Velferðarnefndar nú?  Þá er nú einsýnt um framhaldið.

Kolbrún Hilmars, 1.5.2018 kl. 15:04

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Kolbrún. Lastu ekki fréttina? "Ásmundur svaraði öllum" (reply-all). Það voru hans mistök en ekki formanns velferðarnefndar.

Hinn ágæti bóksali á Selfossi getur eflaust kennt honum að það borgar sig að skoða viðtakendalistann vel áður en maður smellir á "senda".

Svo verður áhugavert að sjá afsökunarbeiðnina fyrir tilhæfulausar ásakanir um "mígleka". (Þetta er auðvitað grín því fyrr mun frjósa í neðra.)

Guðmundur Ásgeirsson, 1.5.2018 kl. 15:28

5 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Ímugust á Pírötum er alger hér hjá höfundi.

Staðreyndir málsins skipta engu, bara að losa yfir Pírata, það er aðal.

Ljóst að höfundur las ekki fréttina hjá MBL í víðu samhengi....

Sigfús Ómar Höskuldsson, 1.5.2018 kl. 15:35

6 Smámynd: Aztec

En er einhver heilvita maður sem les þetta sorprit Stundina? Liðið sem starfar þar eru rotturnar sem voru á gamla DV.

Annars er það rétt, að Ásmundi sé vorkunn að hafa gert þessi mistök. En samt sem áður var það Halldóra sem setti vísvitandi upp gildru fyrir Ásmund, þannig að það ætti að sparka henni úr nefndinni. Hún var hugsuðurinn að baki lekans.

Aztec, 1.5.2018 kl. 15:41

7 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Guðmundur, formaður velferðarnefndar sendi "all".  Auðvitað átti svarið/svörin að vera "reply-all".  Alltaf rétt að kíkja á orsökina á undan afleiðingunum.  Efnislega hef ég svosem engan sérstakan áhuga á þessum tölvupóstum. 

Kolbrún Hilmars, 1.5.2018 kl. 15:46

8 Smámynd: Ingi Þór Jónsson

Fyrst var það Halldóra sem míglak svo þegar fatatðist að hann hafði replyað á alla þá er það henni að kenna að hann gat replyað á fólk sem hann átti ekki að geta gert.

Hann er kanski á rúnntinum út um allt land að sendast með bréf af því að email er of flókið.

Ingi Þór Jónsson, 1.5.2018 kl. 16:20

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Stormar geisa í glösum hér

yfir gervi-lög-broti.

Kennt um þá jafnan einhverjum er

í Alþingis-sloti.

Tölvunum einum um má kenna.

Alþingismenn ættu að skrifa með penna!

 

Jón Valur Jensson, 1.5.2018 kl. 16:32

10 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Kolbrún þú virðist ekki enn hafa lesið fréttina til enda.

"Þetta var bara til­kynn­ingar­póst­ur og það er eng­inn trúnaður um það, ég var að til­kynna nefnd­inni, for­seta þings­ins, ráðherra og þing­flokkn­um mín­um. Ég veit að marg­ir aðrir þing­menn áfram­sendu tölvu­póst­inn á sína þing­flokka, útaf því að þetta var til­kynn­ing sem vert var að vita af."

Þetta er ekki að senda á "alla" heldur að senda á tiltekinn hóp viðtakenda. Ásmundur sendi svo sitt svar við tilkynningunni til allra þeirra viðtakenda sem hver og einn gæti hafa áframsent svar hans hvert sem er. Í þeim hópi er fólk úr öllum flokkum. Þetta mun kannski ekki breyta andúð sumra hér á Pírötum en er samt staðreynd málsins.

Eitt getum við þó sennilega öll verið sammála um hér, að ekki sé að vænta afsökunarbeiðni fyrir tilhæfulausa ásökun um meintan "mígleka" formanns velferðarnefndar.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.5.2018 kl. 18:35

11 Smámynd: Kolbrún Hilmars

OK, Guðmundur, þá skulum við draga umræðuna niður á annað og skiljanlegra plan.  Formanninum var hugsanlega (?) frjálst að senda tölvupósta á hvern sem honum þóknaðist utan þingnefndar sinnar.  Gestum og gangandi, sem þú kallar "tilkynningarpóst".  En er það þannig sem nefndarfólk á Alþingi almennt sendir tölvupósta sín á milli?
Eitthvað er hér sem þarfnast greinilega endurskoðunar!

Kolbrún Hilmars, 1.5.2018 kl. 19:57

12 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Kemur ekki upp hjá neinum orðið nornaveiðar við lestur og hlustun um/á þetta mál?

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 4.5.2018 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband