Allir að græða.

Ég hef frétt að mikil veisla hafi verið hjá Eyjamönnnum á Shellmótinu. Allir ætluðu að græða sem mest á gestunum því það er auðvitað engan veginn víst að þeir sjáist aftur svo það var um að gera að þéna sem mest á hverjum einum.

Jafnvel bakarinn fór á kostum og hækkaði verðið á brauði og bakkelsi, en sagði svo heimamönnum að þeir fengju afslátt svo þeir yrðu ekki fyrir óþægindum af gullæðinu.

Löggan smitaðist greinilega af ástandinu og hóf að sekta fólk fyrir smávægileg brot.

Ekki veit ég hvort slíkt háttalag ýtir undir fólk að koma aftur. Efast stórlega.


mbl.is 13 kærðir fyrir umferðalagabrot í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta fyrirbæri er líka algengt á Þjóðhátíð.

Guðmundur D. Haraldsson (IP-tala skráð) 4.7.2006 kl. 19:00

2 identicon

Þetta fyrirbæri er líka algengt á Þjóðhátíð.

Guðmundur D. Haraldsson (IP-tala skráð) 4.7.2006 kl. 19:01

3 identicon

Verð nú að segja að mín reynsla af yfirvöldum í Vestmannaeyjum er nú á þá vegu að ólíklegt er að ég muni nokkurn tíma aftur leggja leið mína þangað. Andrúmsloftið í þessu bæjarfélagi er í hæsta lagi furðulegt. Maður veltir fyrir sér hvernig menn telja þetta geta gengið, þegar farið er að reyna að græða á þeim fáu sem enn heimsækja þessar slóðir. Líklegast mun þetta fólk enda einangrað og yfirgefið þarna úti í miðjum sjó. Leiðinleg framtíð.

Jón Kristbjörnsson (IP-tala skráð) 4.7.2006 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1033442

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband