Færsluflokkur: Dægurmál
19.6.2015 | 10:05
Stærsta fjárkúgun ríkisspenaaðalsins til þessa
Líklega eru aðgerðir Bandlags háskólamann stærsta tilraun til fjárkúgunar í sögu lýðveldisins.
Allir vita að ef gengið verður að kröfum bandalagsins er nýgerðir samningar við láglaunafólk lausir.
Við sem höfum stritað ævina langa við að byggja upp mennta- skóla- og heilbrigðiskerfi sem er með því besta í veröldinni, höfum skömm á framferði embættismannanna og ríkisspenaaðalsins.
![]() |
Við stöndum við orðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2015 | 18:47
Stolt
Alltaf fyllist maður stolti þegar útlendingar koma gagngert til landsins að taka þátt í árlegum hátíðarhöldum CCP.
Lofræður þessa fólks um fyrirtækið ylja manni um hjartarætur.
![]() |
Starfsemi CCP í Vatnsmýrina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2015 | 22:05
Rétt að byrja - Feysknir raftar falla
Um árabil hefur verið altalað að um mikla spillingu sé að ræða í alþjóðaknattspyrnunni. Sjaldan eða aldrei hefur nafn Sepp Blatters verið langt undan.
Núna hafa Svissneskir saksóknarar kynnt upphaf sinnar vinnu til að upplýsa hneykslin, en að líkindum eru þeir hræddir við rannsóknir FBI vestan hafs.
Ballið er rétt að byrja og líklegt er að víða brotni feysknir raftar um heim allan.
![]() |
Svissneskir bankar tilkynntu brotin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2015 | 11:27
Samfól vanvirða lýðveldið - samansafn dóna
Arfleifð Jóhönnu Sigurðardóttur í hnotskurn. Jóhanna gerði góða hluti þegar hún var félagsmálaráðherra, einkum þegar hún stóð fyrir átaki í húsnæðismálum geðfatlaðra, sem ég fæ seint full þakkað.
Hatrið sem hún innleiddi í pólitíkina og heiftin, er verk hennar sem erfitt er að fyrirgefa, hvað þá gleyma.
Samfólski stimpillinn fer ekki af Samfylkingunni svo lengi sem flokkurinn er við lýði.
Skömm forystumanna Vg og Samfylkingar á eftir að reynast þeim erfið.
Þjóðin líður fyrir hatursstjórnmál Jóhönnu Sigurðardóttur.
![]() |
Púað á Sigmund Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
17.6.2015 | 04:29
Dýr áróðursherferð og fúlgur fjár ganga manna á milli
Enn á ný notar Landspítalinn spunameistara í baráttu sinni við ríkiskassann, að þessu sinni beinist herferðin að Sjúkratryggingum Íslands þar sem vandaður embættismaður gætir fjármuna borgaranna.
Spunameistari (rándýr) LSH vegur að Sjúkrahótelinu í Ármúla þessa stundina í því skini að ná starfseminni undir spítalann.
Aðstaðan í Ármúlanum er um margt lík og var á Rauðarárstígnum, m.a. eru nákvæmlega sömu innréttingar í matsal og setustofu en setustofan nýtist mun betur í Ármúlanum.
Páll Matthíasson kvartar yfir hávaðanum vegna breytinga sem eiga sér stað á húsnæði hótelsins og er tímabundinn.
Þess ber að geta að á Sjúkrahótelinu eru sjúklingar sem fengið hafa heimfararleyfi eða eru útskrifaðir af viðkomandi deild.
Hávaðinn sem mun fylgja sjúkrahótelsbyggingu við Barónsstíg mun hinsvegar trufla og raska ró sjúklinga á spítalanum sjálfum sem eru að jafna sig eftir misstórar aðgerðir og þarfnast meira næðis en þeir útskrifuðu.
Það er ömurlegt að horfa upp á hve spunameistarar Landspítalans misnota Helga Seljan trekk í trekk í þágu sinna viðskiptavina og fróðlegt væri að vita hve miklar fjárhæðir skipta um hendur í þessum ljóta leik ríkisfyrirtækjanna.
![]() |
Vill segja upp samningnum við Sinnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 05:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2015 | 03:46
Páll Matthíasson að réttlæta nýtt hótel á lóð LSH
Aldeilis ömurleg umfjöllun Helga Seljan um sjúkrahótelið við Ármúla.
Ég hef persónulega reynslu af rekstrinum og þjónustunni og get hælt flestu sem þar fer fram. Maturinn hollur og góður og ríflega skammtaður. Ég hef umkvartanir, en þær varða mig einan.
Helgi Seljan er í heimskulegri og heimóttalegri aðför að rekstrinum.
Mikil er skömm ríkisútvarpsins að birta þessa hatursumræðu.
Steingrímur Ari Arason á greinilega ekki orð yfir barnalega umfjöllun Helga.
![]() |
Gagnrýnin beinist að Sjúkratryggingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2015 | 21:51
Einu farþegaflutningstækin þar sem ekki þarf meirapróf
Unga fólkið sem ekur tuk tuk um götur borgarinnar hefur fengið undanþágu að aka með farþega sem ekki er til í lögum eftir því sem best verður séð.
Ég sá unga stúlku í gær aka með farþega um borgina og skrifaði ótt og títt skilaboð á símann sinn eða ritgerð eða hvað veit ég. Farþegarnir hrópuðu á hana þegar hún var nærri búin að aka á fótgangandi á gangbraut við Kirkjustrætið.
Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að farið sé að lögum varðandi réttindi ökumanna tuktukanna.
Þú keyrir ekki rútu eða leigubíl nema eftir ítarleg námskeið margskonar próf.
Hvaða reglur gilda um þessa fólksflutninga?
![]() |
Á Tuk Tuk um götur borgarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.6.2015 | 08:23
Gömul fyrirsögn og ný
Mér finnst ég hafa séð þessa sömu fyrirsögn fyrir nokkrum árum varðandi hana Lindu P. Það er bara gott að fólk finnur ástina reglulega.
Til dæmis væri ég ekki á móti því að finna ástina og kvænast til fjár. Ekki veitir af.
![]() |
Linda Pé fann ástina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.6.2015 | 18:28
Þjóðníðingar
Fyrirsögnin segir það sem mér býr í brjósti þessa stundina. Var að hlusta á fréttir á ruv kl. sex. Fyrstu sex mínúturnar fóru í að hallmæla ákvörðun yfirvalda um að stöðva verkfall hjúkrunarfræðinga og allra hinna sem réðu sig til að sinna veiku fólki.
Svo kom Þórunn Sveinbjörnsdóttir og fullyrti að enginn sjúklingur hafi orðið fyrir óþægindum að völdum verkfallanna.
Þessi kona hefur ekki hugmynd um hvað hún er að segja, en þeir mörg hundruð sjúklingar sem orðið hafa fyrir miska vegna verkfallanna gætu leiðrétt Þórunni.
Fréttastofa ruv hætti að kynna sér málin betur, en enginn vilji virðist vera til að segja satt á þeim bæ ef það gagnast ekki samfylkingunni og vg.
Ég get sagt margar sögur af bágri þjónustu heilbrigðiskerfisins en geri það ekki vegna þess að mér fór að þykja vænt um einstaka starfsmenn á göngu minni og legu nýlega.
Að bjóða fólki upp á svona framkomu ruv og forsvarsmanna starfsmannafélaganna sem í hlut eiga er móðgun við heilbrigða skynsemi.
![]() |
Ástæða til að láta reyna á málsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2015 | 17:02
Samfylkingin samfellt í stjórn í meira en sex ár
Það er útaf fyrir sig fróðlegt, þó sorglegt sé að hlusta á Samfylkingarþingmenn þessa daga á alþingi Íslendinga.
Hver þingmaðurinn á fætur öðrum, kemur í ræðupúltið og sýnir af sér hvílíka hræsni að maður missir alla tiltrú á löggafarsamkundunni.
Líklega kemur Katrín Júlíusdóttir þó oftast í púltið og veldur manni velgju og annarri vanlíðan.
Í rúm sex ár var þetta fólk í ríkisstjórn, en hefur aldrei viðurkennt þátttöku sína í ríkisstjórn Geirs Hilmars Haardes.
![]() |
Ekki hlustað mikið á okkar hlið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Úr hugskoti Heimis
Bloggvinir
-
malacai
-
gelgjan
-
aronb
-
skagstrendingur
-
agustolafur
-
solisasta
-
baldher
-
emmgje
-
bergruniris
-
skinogskurir
-
bjarnihardar
-
gattin
-
tilfinningar
-
greindur
-
ekg
-
einarsmaeli
-
evabenz
-
eyglohardar
-
eythora
-
ea
-
feministi
-
arnaeinars
-
g-bergendahl
-
gudni-is
-
lucas
-
gudmunduroli
-
zeriaph
-
boggi
-
gotusmidjan
-
doritaxi
-
hallurg
-
smali
-
heidistrand
-
heidathord
-
heimssyn
-
diva73
-
helgimar
-
himmalingur
-
kliddi
-
haddih
-
hordurj
-
ingabesta
-
ithrottir
-
jakobk
-
jonaa
-
jbv
-
joninaottesen
-
jon-o-vilhjalmsson
-
jonsnae
-
jorunn
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
katrinsnaeholm
-
kolbrunb
-
ksh
-
kollaogjosep
-
kristinn-karl
-
kristjan9
-
lady
-
presleifur
-
liljabolla
-
vonin
-
mariakr
-
methusalem
-
morgunbladid
-
obv
-
olinathorv
-
omarbjarki
-
perlaoghvolparnir
-
ragnar73
-
rannveigh
-
redlion
-
trandill
-
puma
-
runirokk
-
rynir
-
fullvalda
-
hjolina
-
heidarbaer
-
holmarinn
-
nr123minskodun
-
sigurdursig
-
siggith
-
hvala
-
stebbifr
-
must
-
steinunnolina
-
svavaralfred
-
unnar96
-
valdimarjohannesson
-
vefritid
-
steinibriem
-
thorsteinn
-
thoragud
-
thordisb
-
thorolfursfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar