Ánægjulegt

 

  • Fréttir af því að reyndur erlendur fjárfestir kaupi tólf íbúðir í hjarta borgarinnar eru ákaflega jákvæðar.
  • Við lestur viðtalsins í blaðinu í dag kemur fram að hann staldraði við þessa húseign vegna þess hversu vandað var til verka.
  • Hann ber mikið lof á Karl Steingrímsson sem byggði húsið ásamt eiginkonu sinni Ester Ólafsdóttur.
  • Hollendingurinn segir Karl listamann.
  • Megi fleiri hans líkar koma til landsins. 

 


mbl.is Kaupir tólf lúxusíbúðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fara offari

  • Borgaryfirvöld eru í stríði við kaupmenn.
  • Veitingamenn njóta hins vegar náðar hjá sama fólki.
  • Borð og stólar frá veitingahúsum hefta víða för borgarbúa.
  • Hvað skyldi kosta okkur skattgreiðendur að þrífa götur, torg og stræti eftir gesti veitingahúsanna

mbl.is Skiltin verða tekin í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður kostur með leigubíl þegar meira liggur við

  • Notkun rafhjóla er verulega góður kostur í stað bíls númer tvö hjá fjölskyldunni.
  • Í landi þar sem almenningssamgöngur eru jafn lélegar og hér á landi þarf fólk að treysta sjálfu sér til að komast leiðar sinnar dags daglega.
  • Þegar meira liggur við notar það leigubíla sem er ódýr og hagkvæmur kostur.

mbl.is Rafmagnshjólin á undan rafmagnsbílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvagganga í Reykjavík

Sunnudagshádegi í lok júlí á Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík.
Gífurleg umferð innlendra sem erlendra ferðamanna er um bygginguna og svæðið. Útlendingarnir þó í miklum meirihluta.
Að sunnanverðu koma fjölmargar rútur og fara með ferðamenn sem koma og fara með þeim rúmlega fimmtíu flugvélum sem lenda og fara um Keflavíkurflugvöll.
Að norðanverðu bíða leigubílar og bjóða þjónustu sína gegn sanngjörnu gjaldi. 
Fólki er mál og eins og allir vita eru salerni fyrir bæði kynin á umferðarmiðstöðvum.
Við aðkomu að salernum í dag sáust blaut fótspor á ganginum að salernunum. Komu frá körlunum. Er inn var komið var flóð á gólfinu sem kom frá einni yfirfullri þvagskálinni. Ekki í fyrsta sinn. Gult þvagið lyktaði illa.
Menn reyndu að komast hjá því að stíga í þvagpollana með misjöfnum árangri.
Eitt andlit lands og þjóðar er Bifreiðastöð Íslands, BSÍ.
Þetta ástand hefur lengi loðað við staðinn.

mbl.is Flugu lágflug yfir vöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlé verður gert á OL

  • Stórleikur KR og ÍA fer fram á mánudagskvöldið 30. júlí.
  • Hlé verður gert á keppni í London á meðan.

mbl.is Jesper Holdt Jensen samdi við ÍA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að saga sag - stagl á Sögu

  • Kosningar til stjórnlagaþings fóru fram 27. nóvember 2010 ef ég man rétt.
  • Hæstiréttur dæmdi kosningarnar ógildar.
  • Alþingi skipaði fólk sem hafí boðið sig fram sem ráðsmenn.
  • Útvarp Saga talar um þetta ráð daglega og eru þau Pétur og Arnþrúður oftast málshefjendur.
  • Það er illa séð ef þeim er andmælt.
  • Pétur syndí Jóni Vali Jenssyni fádæma ruddaskap í morgun og skellti að lokum á hann.
  • Jón Valur gagnrýndi skipun og vinnubrögð Alþingis.
  • Pétur var ráðsmaður og eftir því að dæma hve mikið hann talar um störf ráðsmanna var þetta stærsta stund lífs hans.
  • Fjölmargir hlustendur Sögu sem ekki eru skjallendur þáttastjórnendanna eru orðnir þreyttir á staglinu.

En glad lystfisker på vej hjem

  • Det var en glad lystfisker som forlod Island i dag.
  • Han havde fanget sommerens største laks i forgårs.
  • Hans søn havde fået seks lakser men faderen "kun" to.
  • Han havde dog grund til ad smile hele vejen til lufthavnen i Keflavík.
  • Håber jeg ser Lars igen næste år.

mbl.is Stærsti lax sumarsins tók Snældu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kirkjan étur sig innan frá

  • Prestar eru miklir menn. Þeir eru hverju samfélagi nauðsynlegir.
  • Launagreiðslur til þeirra samkvæmt frétt Morgunblaðsins er þó á skjön við siðferðisvitund margra.
  • Kirkjan étur sig innan frá.
  • Ég myndi þiggja laun KÁF sem eru umfram milljónina.

mbl.is Sr. Kristinn með 1.244 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband