Ekki hlátur í huga - forsjárhyggja

Grunnskólaskrifstofa bannar börnum að þiggja tannbursta.

 

  • Er þetta sama fólkið og bannaði börnum í Austurbæjarskóla að borða svínakjöt?
  • Er þetta sama fólkið og bannaði kristni í grunnskólum?
  • Hvað segja kjörnir fulltrúar?

 


mbl.is Mega ekki gefa tannbursta í skólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslimskir kratar á villigötum

Ekki er þessi frétt ýkja merkileg. Hefði farið betur á að skýra hversvegna flokkur Shinawatra hefur yfirburðastöðu í landinu. Thaksin Shinawatra kom milljónum manna úr örbirgð til álna, vann stórkostlegar úrbætur á vegakerfinu og veitti þjóðinni sjálfstraust. 

Yingluck systir hans hefur ef til vill ekki hæfileika á sömu sviðum og hann, en hún kemur mjög vel fyrir og hefur vit á að leita í smiðju bróður síns.

Demókratarnir úr suður héruðunum þar sem múslimar ráða ríkjum hafa haldið uppi róstum í Bangkok og hafa uppskorið fyrirlitningu meirihluta þjóðarinnar. Múslimarnir samir við sig, geta ekki unnt öðrum að nýta lýðræðislegan rétt sinn til að kjósa til þings. 

Einu mistök Thaksins voru að selja Man City á sínum tíma. 


mbl.is Mótmælendur loka kjörstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirgangur

Hvað þykjast norðmenn eiginlega vera? Yfirgangur þeirra í fiskveiðimálum í norðurhöfum er yfirgengilegur. Norðmenn einir þjóða við norður Atlantshaf veiða enn lax í net. Þeir telja sig geta drottnað yfir minni þjóðum. Hafa þeir efni á þessum rembingi? 


mbl.is Norðmenn segjast ekki sökudólgurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki dómbær

Mér er ómögulegt að mynda mér skoðun á myndum kennslukonunnar, hvort þær eru klámfengnar eða ekki, nema að sjá þær.
mbl.is Kennslukona sendi sjálf nektarmyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra

Guðmundur Þ Guðmundsson á erfitt verk fyrir höndum að halda danska landsliðinu á tánum um ókomin ár.

Anna sæti á Evrópumeistaramótinu eru því góð úrslit fyrir hann persónulega því nú hefur hann að tveimur stórum titlum að stefna; heimsmeistara - og Evrópumeistaratitli. 


mbl.is „Skrýtið að skora 32 mörk en fá rassskell“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki til fyrirmyndar

Að halda á ketti undir stýri getur varla verið til eftirbreytni. En svo er að sjá að löggan sé í belti en kötturinn notaður sem stuðpúði. Það er vandlifað í henni veröld.
mbl.is Lögregluköttur í starfsmjálmun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisbrandari

Neytendastofa ræðst í rándýra könnun á lyfjaverði á Íslandi. Farið er í flestar lyfjaverslanir landsins a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu og öllu velt við til að geta bent okkur viðskiptavinum verslananna á hvar hagstæðast er fyrir okkur að kaupa dagleg lyf. Niðurstaðan samkvæmt fréttatilkynningu ríkisapparatsins er að mikill verðmunur er á einni brjóstsykurstegund. Ekki eitt einasta orð um verð á einstaka lyfjum. 

Líklega einhver dýrasti brandari hins opinbera til þessa. 


mbl.is Gífurlegur munur milli lyfjaverslana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhliða og særandi ummæli um starfsmenn og aðstandendur

Afskaplega þykja mér frásagnir geðsjúkra einhliða af reynslu sinni af starfsfólki geðdeilda. Læknar og hjúkrunarfólk gera sitt besta og metur ástand sjúklinga hverju sinni á þeirri stundu sem þeir þurfa á aðstoð að halda. Eftir á meta þeir svo sjálfir að andlegt ástand haf verið nógu gott á þeirri stundu sem gripið var til aðgerða. Mér finnst slæmt að lítið úr starfsmönnum spítalanna og ekki síður okkur aðstandendum sem stöndum frammi fyrir erfiðum aðstæðum og þurfum að taka ákvörðun sem snertir líf viðkomandi um framtíð. Við treystum læknum og öðru hæfu fólki til að meta ástand fárrveiks fólks rétt. 

Ég er undrandi á Geðhjálp, aðstandendafélagi geðsjúkra að gera ekki athugasemdir við ummælin og ekki síður einhliða fréttaflutning Morgunblaðsins af fundinum. 


mbl.is Á Klepp eftir mikla kannabisneyslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðist vonlaus rekstur

DV virðist í algerlega vonlausri fjárhagsstöðu. Líklega er slæm staða skýringin þunglyndisskrifum blaðamannanna um þessar mundir.


mbl.is Reynir og Þorsteinn auka hlut sinn í DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband