Endurgreiða með verðbótum

Þau Már og Lára virðast hafa gert stór mistök. Ekkert annað í stöðunni er að þau endurgreiði almenningi þessa fjárhæð og það með verðbótum og vöxtum
mbl.is „Mér finnst þetta ekki rétt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misfarið með opinbert fé

Það virðist ljóst að hvorki Már Guðmundsson né Lára V Júlíusdóttir hafi siðferðiskennd til að sjá meinbugi á meðferð sinni með fé almennings.

Er þá ekki rétt að spyrja fyrrverandi forsætisráðherra sem ber ábyrgð á ráðningu beggja málsaðila hvort þessi sóun almannafjár hafi veri með hans vitund?


mbl.is Var krafinn um kostnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spekúlantarnir ráða borginni

Aldrei var það svo í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að byggingaspekúlantar réðu gjörðum borgarfulltrúa.

Á byggingaframkvæmdum víðsvegar í hjartaborgarinnar er ljóst að byggingaverktakar hafa tekið yfir stjórn skipulagsmála og virðist þá ekki spurt um velsæmd og heiður. 


mbl.is Borgin hafi reynst úlfur í sauðargæru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar ákveðið

Þingið á Krím hefur nú þegar ákveðið að Krím skuli heyra Rússlandi til. Kosningar hvað?
mbl.is Kjósa um sameiningu við Rússland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

225 þúsund fyrir þriggja herbergja íbúð

Hitti konu í dag sem leigir 3ja herbergja íbúð á 185.000 á mánuði, en neyðist til að flytja, því leigugjaldið hækkar 1. maí í 225 þúsund krónur á mánuði.

Þetta er algengt verð sagði unga konan og gerist á vakt Samfylkingarinnar í borginni. 


mbl.is Líkir Hlíðarenda við evrópskar borgir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rán um hábjartan dag

Það er ekki nóg með að Bílastæðasjóður plokki af manni peninga samkvæmt allt of hárri gjaldskrá, heldur gleypa þeir peninga sem ekki ná viðmiðunarvigt og skammast sín ekkert fyrir það.

Til að bæta okkur viðskiptavinum sjóðsins þetta upp, legg ég til að tíunda hver sekt hverfi líka og komi ekki til innheimtu. 


mbl.is Gleypa léttari tíkallinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar Bragi skilur ekki

Óðinn Jónsson fréttastjóri rekur fréttastofuna eins og hann eigi hana og sé einn handhafi sannleikans. Hann kærir sig kollóttan um skoðanir þeirra sem í viðtal koma, bara að hann geti klippt viðtölin til og tekið út það sem ekki samræmist hans pólitísku skoðunum. 

Ef Óðinn Jónsson er hlynntur aðild að Evrópusambandinu, er eins gott að Gunnar Bragi Sveinsson utanríkiráðherra tali eins og fréttastofan vill að hann tali og segi aðeins það sem lætur vel í eyrum fréttastjórans Óðins Jónssonar. 

Komi til að Gunnar Bragi Sveinsson læri að haga sér. 


mbl.is Eðlilegt að fá að hlusta á viðtalið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjónar almennings karpa

Umræðan er æði skrautleg hér á landi um þessar mundir. Fréttamenn RÚV láta sér ekki nægja að matreiða fréttir ofan í landsmenn, heldur veitast þeir að utanríkisráðherra sem vill hafa hönd í bagga með hvað eftir honum er haft. Það virðist bara vera of stór biti að kyngja fyrir fréttamenn okkar skattgreiðenda.
mbl.is „Ef þið klippið ekki allt til“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 1033449

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband