Óþarfa viðkvæmni.

Það er með ólíkindum hvað við erum viðkvæm fyrir gagnrýni af hálfu erlendra banka og fjármálastofnana.

Þjóðin hefur verið töluð upp í því að allt sem við gerum sé hafið yfir gagnrýni. Þegar svo er komið getum við ekki tekið samkeppnisathugasemdum. Þjóðin fer í fýlu og hótar að tala aldrei aftur við þessa dela sem haga sér svona.

Hitt er annað mál, að enginn gerir athugasemd við óhróðurstal okkar um aðrar þjóðir. 


mbl.is Berum ekki kala til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Maelstrom

Ekki man ég í svipinn eftir sérstöku óhróðurstali okkar um aðrar þjóðir.  Eitthvað sérstakt sem þú ert að tala um?

Maelstrom, 19.5.2008 kl. 15:48

2 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Vel athugað hjá þér. Við Íslendingar eru svo fullir af fordómum um útlendinga og "útlandið" að mér blöskrar það bókstaflega.

Ég bjó tólf ár í Mið-Evrópu og varð ekki meint af, þvert á móti opnaði það sjóndeildarhringinn og ég þakka Guði fyrir að hafa komist aðeins í burtu, bæði til að læra að meta "útlandið" og til að læra hvað það er gott að búa á Íslandi!

Kveðja, Guðbjörn

P.S. Hef gaman af að lesa "kommentin" þín, þótt ekki sé ég alltaf sammála!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 19.5.2008 kl. 17:42

3 identicon

alveg gjörsamlega sammála þér, veit ekki betur en þorri þjóðarinnar tali niður til pólverja, litháa, illa um ísraela og araba, svo þolum við ekki smá gagnrýni sjálfir.

kveðja, Rafn

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 18:35

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þekkt er illt umtal okkar norðmenn, bandaríkjamenn, svía, dani og ekki síst um færeyinga.

Ég fór á sínum tíma til þriggja áta dvalar erlendis með fordóma í huga og á vörum. Það breyttist sem betur fer.

Ég er ánægður með það að þú sért ekki alltaf sammála mér Guðbjörn.

Ég þyrfti ekki að viðra skoðanir mínar ef ég teldi þær vera viðteknar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 19.5.2008 kl. 19:07

5 Smámynd: Maelstrom

Þú ert s.s. að tala um umtal í saumklúbbum og kaffistofum, eða hvað?  Munurinn er kannski að fréttin fjallar um opinbera greiningu 'virtra' bankastofnanna og fréttamiðla.

Mér er alveg sama hvað menn segja sína á milli.  Hvað höfum við sett frá okkur 'officielt'?

Maelstrom, 20.5.2008 kl. 10:13

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Þessi rök þín eru skotheld Maelstrom.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 20.5.2008 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1031707

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband