Maðkur í mysunni.

Úr Morgunblaðinu:

Laugardaginn 12. júní, 1999 - Innlendar fréttir
Ríkislögreglustjóri rannsakar meintar falsanir á ökuprófgögnum
Ökukennari og starfsmenn Umferðarráðs liggja undir grun
Ríkislögreglustjóri rannsakar meintar falsanir á ökuprófgögnum

Ökukennari og starfsmenn Umferðarráðs liggja undir grun

ÖKUKENNARI, sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald á föstudaginn í síðustu viku, að beiðni ríkislögreglustjóra í þágu rannsóknar á meintum fölsunum á ökuprófgögnum, var látinn laus á fimmtudagskvöld. Hefur maðurinn játað að hafa falsað staðfestingu ökuprófdómara á ökuleyfisumsóknum ökunemenda þess efnis að þeir hefðu staðist próf um aukin ökuréttindi eða meirapróf og bifhjólaréttindi.

Virðist margt benda til þess að brotin hafi verið framin í auðgunarskyni, að sögn Helga Magnúsar Gunnarssonar, löglærðs fulltrúa hjá ríkislögreglustjóra. Að hans sögn eru hin meintu tilvik á annan tug talsins og áttu sér stað á síðasta ári og á fyrri hluta þessa árs.

"Á þessu stigi málsins höfum við ekkert sem bendir til þess að tilvikin séu fleiri," sagði Helgi Magnús í samtali við Morgunblaðið. "Náð hefur verið utan um drjúgan hluta þessara tilfella, þannig að mjög fáir ökunemendur eru nú akandi um með fölsk réttindi vegna þessarar starfsemi. Það verður gengið í það á vegum Umferðarráðs og ríkislögreglustjóra að taka réttindi þeirra úr umferð."

Naut aðstoðar starfsmanns Umferðarráðs

Við rannsókn málsins hefur komið í ljós að maðurinn naut í einhverjum tilvikum aðstoðar starfsmanns ökunámsdeildar hjá Umferðarráði, sem tengdist síðan enn öðrum starfsmanni Umferðarráðs vegna svipaðrar starfsemi. Hefur þeim báðum verið gert að mæta ekki til vinnu á meðan rannsókn málsins stendur yfir.

Að sögn Óla H. Þórðarsonar, framkvæmdastjóra Umferðarráðs, mun ákvörðun um hvort þeim verði vikið frá störfum liggja fyrir að lokinni rannsókn ríkislögreglustjóra.

"Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum og ég er mjög sár og hryggur yfir því að þetta skyldi koma fyrir, en er að vona að umfangið sé ekki mikið," sagði Óli H. Þórðarson. "Það er hins vegar ljóst að eitt tilvik af þessu tagi er of mikið."

Hann sagði að hjá Umferðarráði hefði þegar verið gripið til aðgerða vegna málsins og lúta þær m.a. að því að koma í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig.

"Aðgerðirnar felast m.a. í því að öll meðferð gagna Umferðarráðs hefur verið hert til mikilla muna. Reglan hefur verið sú að ökukennarar hafa sjálfir afhent gögn til lögreglustjóra til útgáfu ökuskírteina. Það hefur verið gert til að auðvelda hinum almenna borgara samskipti við hið opinbera, sem er stefna okkar. Þessu verðum við hins vegar að breyta, þannig að eftirleiðis fara allar sendingar af þessu tagi formlega á milli Umferðarráðs og viðkomandi lögreglustjóraembættis. Síðan skoðum við ofan í kjölinn öll þau mál sem um ræðir," sagði Óli H. Þórðarson.

Gömul frétt, en sígild?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Sjá einnig frétt á hinu blogginu mínu fráa 160699.

Úr hugskoti Heimis.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 14.12.2007 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 1031614

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband