Stórmerkilegt fyrirtæki

Á meðan MS eys sykri í sínar vörur fer Arna þveröfuga leið.

Líklega er Arna athyglisverðasta fyrirtækið í matvælaframleiðslu á Íslandi í dag.

Það er hrein unun að fylgjast með vöruþróuninni hjá þeim, en hætt við að hún verði of kostnaðarsöm.

Gangi þeim allt í haginn laughing


mbl.is Ísinn fæst bara fyrir vestan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjarðhegðun?

Svona má hvorki tala né skrifa, en að manni læðist sá grunur að um hjarðhegðun sé að ræða.

Hjúkrunarfræðingar bera saman sitt kaup við lækna fyrst og fremst, sem að mörgu leiti er skiljanlegt, en er það raunhæfur samanburður?


mbl.is 75% á einni deild hafa sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Botninum ekki náð

Hver og einn verður að finna sinn botn í ofnotkun áfengis.

Þegar ég fann minn botn hófst batinn.

Tryggvi mætti fullur á æfingu, en segist bara hafa fengið sér nokkra kalda. Hann er að blekkja sjálfan sig enn einu sinni.


mbl.is „Búinn að fá mér nokkra kalda“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppspuni frá rótum

Morgunblaðið hefur verulega sett ofan við birtingu þessarar fréttar.

Myndir úr öryggismyndavélum hafa ekki verið birtar eins og fullyrt var.

Leigubílstjóri einn tók sig til og keypti far með kolólöglegum leigubíl sem kallar sig svo og tók ferðina upp á símann sinn og birti á síðu okkar leigubílstjóra. Hann myndaði glæpinn og kom honum á framfæri.

Morgunblaðið tekur málstað hins ólöglega bílstjóra, sem er réttindalaus og hefur ekki leyfi til farþegaflutninga og er þar að auki ekki með bílinn tryggðan á fullnægjandi hátt.

Skutlarar eru hræddir um sinn hag vegna þess að löglegir leigubílstjórar una þessari svikastarfsemi ekki lengur, þeir gera Mogga viðvart og fylla blaðamann af allavega rangindum sem hafa vakið mikla athygli og valdið mörgum skráveifu.

Morgunblaðið á heiður sinn í húfi ef þeir biðja ekki bílstjóra Hreyfils-Bæjarleiða afsökunar á röngum sakargiftum.


Forkastanleg vinnubrögð

Hvaða fáráður á Mogga skrifaði fréttina í morgun og kom óorði á okkur leigubílstjóra?

Skutlfnykinn leggur af fréttinni, Morgunblaðið skrifaði fréttina án þess að kynna sér málið.

Vinnubrögðin er á ábyrgð blaðamannsins og vakthafandi fréttastjóra og verða að teljast forkastanleg.


mbl.is Myndbandið ekki úr öryggismyndavél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sammála Ástgeiri um sumt

Í minum bíl er myndavél og þeir sem gera athugasemdir þar um eru sammála nauðsyninni þegar ég hef útskýrt málið fyrir þeim.

Mér þykir rétt að Frami eða Hreyfill-Bæjarleiðir geri könnun á hvort árásum á bílstjóra hafi fækkað við upptöku vélanna og hvort líkamsárásir á bílstjóra hafi verið í bílum með vélar.

Vélarnar taka líka upp fram fyrir sig og upptakan getur verið mikilvæg ef viðkomandi lendir í umferðaróhappi.

Í stað þessa að banna vélarnar er réttara að leigubifreiðastöðvarna setji reglur um notkun upplýsinga sem þær ná og geyma.

Ríkið hefur ekkert með að setja enn fleiri reglur fyrir okkur, berum ábyrgð á okkur sjálf.

 


mbl.is Ekki rétt að birta myndir úr bílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur á óvart

Aldrei hef ég séð neitt af því sem talið er upp í fréttinni á síðunni Hreyfill-Bæjarleiðir. Leynileg myndbandsupptaka á að fara fram í bílunum væntanlega. Ég hélt að allir bílar með myndavél væru vandlega merktir um að öryggismyndavél væri í viðkomandi bíl.

Því miður er það svo að sumir ómerkilegir aðilar reyna að komast hjá að greiða fargjaldið og láta skilríki og fleira sem tryggingu svo, að hægt sé að ná sambandi við þá til að innheimta skuldina sem stofnað hefur verið til. Allt of mikill tími fer hjá bílstjórum oft á tíðum í að innheima slíkar útistandandi skuldir.

Sé frétt mbl.is um að verið sé að birta myndir úr öryggismyndavélum bíla, er það ámælisvert og engum til sóma. Leigubílstjóri með öryggismyndavél fer með mikið vald og verður að kunna að fara með það.


mbl.is Skiptast á upplýsingum um farþega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikur prófarkalesarinn?

.... fugla til styrktar Reykjadals, segir Mogginn.

Mun enginn leika þar til styrktar Reykjadal?

Ekki einu sinni prófarkarlesarinn?


mbl.is KPMG-bikarinn á morgun - fuglar til styrktar Reykjadal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reiði og sorg og Flórencarnar í pólitík

750 þúsund króna meðal mánaðarlaun þætttu góð, en hjúkkum þykja þau lág. Þær hafa gaman af að pendla og halda því bara áfram það er að segja nema þær sem flytja frá fjölskyldum sínum til Noregs.

Nú er bara að flytja inn hjúkkur sem kunna að meta þjóðfélagið okkar og láta hinar róa sem alltaf eru óánægðar hvort sem er.

Hver er ekki dauðvona?


mbl.is Vonbrigði, reiði og sorg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Úr hugskoti Heimis

Höfundur

Heimir Lárusson Fjeldsted
Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrrv. mjólkursaml.stj., fast.sali, frkv.stj., kaupm., bílstj. o.fl.

Júní 2015
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 9978

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 1031721

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband